Fréttir
Póstlisti
Nafn*:
Netfang*:

26.8.2010 
Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur borist erindi frá Félags- og tryggingamálaráðherra, dagsett 26.ágúst 2010. Þar setur hann fram þá hugmynd að skipuð verði valnefnd þriggja til fjögurra einstaklinga sem leggi mat á umsækjendur um stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, þar sem ekki hefur tekist full samstaða í stjórn sjóðsins um ráðninguna.
26.8.2010 

Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2010 var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins 26. ágúst 2010. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34. Tap varð af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 1.680 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 8.402 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

11.8.2010 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 2,8 milljörðum króna í júlí en þar af voru um 1,8 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrstu sjö mánuðum ársins 2010 tæpum 14,8 milljörðum króna samanborið við tæplega 19,9 milljarða yfir sama tímabil ársins 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 9,9 milljónir króna í júlí samanborið við rúmar 8,7 milljónir króna í júní.
9.8.2010 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,50% og 5,00% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Þessi ákvörðun tekur gildi í dag, 9. ágúst 2010.
30.7.2010 
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody‘s tilkynnti 30. júlí 2010 að horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs yrði breytt úr stöðugum í neikvæðar, í kjölfar breytinga á horfum á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands úr stöðugum í neikvæðar. Sjá nánari umfjöllun hér.
13.7.2010 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rétt rúmum 1,9 milljörðum króna í júní en þar af voru um 1,6 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 tæpum 12 milljörðum króna samanborið við rúmlega 17,4 milljarða á sama tímabili árið 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 10,0 milljónir króna í júní en um 8,6 milljónir í maí síðastliðnum.
9.7.2010 
Stjórn Íbúðalánasjóðs samþykkti á fundi sínum 8. júlí að fresta ráðningu nýs framkvæmdastjóra sjóðsins. Ásta H. Bragadóttir aðstoðarframkvæmdastjóri mun gegna stöðu framkvæmdastjóra um óákveðinn tíma. Guðmundur Bjarnason lét af starfi framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs 1. júlí.
15.6.2010 
Matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því 14. júní 2010 að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir Íbúðalánasjóðs vegna lækkandi eiginfjárstöðu. Lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum lækkar í BB+ úr BBB. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuld-bindinga í erlendri mynt lækkuð í BB+ úr
BBB-. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og erlendri mynt var lækkuð í B úr A-3. Þá voru lánshæfiseinkunnirnar teknar af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Horfur eru neikvæðar. Sjá nánari umfjöllun hér.
14.6.2010 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 2 milljörðum króna í maí en þar af voru  um 1,3 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrstu fimm mánuðum ársins 2010 rúmum 10 milljörðum króna samanborið við tæplega 14,8 milljarða á sama tímabili árið 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 8,6 milljónir króna í maí en um 8,4 milljónir í apríl síðastliðnum.
9.6.2010 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum og í samræmi við breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,50% og 5,00% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Vaxtaálag sjóðsins hefur verið hækkað um 0,15%. Vaxtaálag vegna rekstrar er nú 0,40%, vegna útlánaáhættu 0,40% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.
25.5.2010 
Fulltrúar Íbúðalánasjóðs og núverandi aðalmiðlarar íbúðabréfa funduðu þann 21. maí s.l. um endurnýjun á núverandi aðalmiðlarasamningi, sem tekur gildi 1. júlí n.k. Fyrirhugaðar eru ýmsar breytingar á samningnum, m.a. verður viðskiptavakt með HFF150914 breytt með þeim hætti að frá og með 1. október 2010 verður aðalmiðlurum einungis skylt að setja fram kauptilboð. Er breytingin gerð í ljósi þess að Íbúðalánasjóði er ómögulegt að auka við útgáfu í flokknum sbr. núverandi reglur um verðtryggingu.
11.5.2010 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 1,2 milljörðum króna í apríl en þar af voru 0,8 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 um 8 milljörðum króna samanborið við rúma 12 milljarða á sama tíma á árinu 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 8,4 milljónir króna í apríl en um 9,2 milljónir í mars síðastliðnum. Mánaðarskýrsluna má lesa hér.
28.4.2010 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,5% en 5,0% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 27.apríl 2010 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,85%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.
23.4.2010 
Matsfyrirtækið Moody's greindi frá því 23. apríl 2010 að það hefði breytt horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs, sem er Baa3, í stöðugar úr neikvæðum. Breyting á horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs Íslands í stöðugar úr neikvæðum.
Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.
15.4.2010 
Ársreikningur Íbúðalánasjóðs 2009 var birtur 15. apríl. Tap af rekstri sjóðsins nam 3.202 millj. kr. Eigið fé hans í árslok var 10.083 millj. kr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 3,0%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Stjórn Íbúðalánasjóðs vinnur nú að tillögum um leiðir til að ná langtímamarkmiði um eiginfjárhlutfall en sjóðurinn hefur nú þegar hækkað vaxtaálag á nýjum útlánum. Í árslok námu útlán 756.634 millj. kr. og hækkuðu um 76.228 millj. kr. á árinu. Lántaka sjóðsins nam 784.570 millj. kr. og hækkaði um 71.901 millj. kr. á árinu. Ársreikningur 2009.
14.4.2010 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 3 milljörðum króna í mars en þar af voru tæplega 1,8 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrsta ársfjórðungi 2010 um 6,8 milljörðum króna samanborið við 9,4 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 9,2 milljónir króna í mars sem er óbreytt frá fyrra mánuði. Heildarvelta íbúðabréfa nam rúmum 58,5 milljörðum króna í mars samanborið við um 56 milljarða í febrúar.
7.4.2010 
Íbúðalánasjóður hefur auglýst til sölu eða leigu nýjar og glæsilegar íbúðir á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Þetta eru tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í fjölbýlishúsum, allar fullbúnar með vönduðum innréttingum og heimilistækjum. Íbúðirnar á Reyðarfirði eru í Melgerði 7, 9, 11 og 13 og á Egilsstöðum í Kaupvangi 41, 43 og 45. Opið hús verður á Reyðarfirði kl. 12:00 – 14:00 sunnudaginn 11. apríl nk. þar sem sýndar verða íbúðir í Melgerði 9 og 13. Sama dag verða íbúðir í Kaupvangi 43 og 45 á Egilsstöðum til sýnis kl. 16:00 – 18:00.
6.4.2010 
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody‘s tilkynnti 6. apríl 2010 að horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs yrði breytt úr stöðugum í neikvæðar, í kjölfar breytinga á horfum á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands úr stöðugum í neikvæðar. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.
31.3.2010 
Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor‘s tilkynnti í gær, 30. mars 2010, að lánshæfismat Íbúðalánasjóðs yrði áfram haft á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum, í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands í innlendri mynt. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.
17.3.2010 
Matsfyrirtækið Standard & Poor´s birti 16. mars 2010 nýja skýrslu um Íbúðalánasjóð.
Skýrsluna má finna í viðhengi.
16.3.2010 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir
sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða
áfram 4,5% en 5,0% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 15.mars 2010 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,85%.
9.3.2010 
Endurskoðuð áætluð útgáfa íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2010 til fjármögnunar nýrra útlána er 42 – 50 milljarðar króna sem er hækkun um 8 milljarða frá fyrri tölum. Hækkunin er í samræmi við fyrirhuguð kaup sjóðsins á íbúðalánasafni samanber tilkynningu til Kauphallar frá 5. mars 2010. Íbúðalánasjóður áætlar að ný útlán sjóðsins verði 25 – 33 milljarðar króna á árinu 2010, sem er lækkun um 4 milljarða kr. frá fyrri áætlun. Þar af er gert ráð fyrir að leiguíbúðalán nemi 10 – 12 milljörðum króna, sem er lækkun um 1 milljarð frá fyrri áætlun. Áætlunin í heild er hér.
9.3.2010 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 1,6 milljörðum króna í febrúar. Þar af voru tæplega 1,4 milljarðar króna vegna almennra lána og um 250 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins lækkuðu því um 24% á milli mánaða. Meðalútlán almennra lána voru um 9 milljónir króna í febrúar sem er tæplega 22% hækkun frá fyrra mánuði. Mánaðarskýrsluna má lesa hér.
5.3.2010 
Stjórn Íbúðalánasjóðs samþykkti á fundi sínum 4. mars sl. kaup sjóðsins á íbúðalánasafni Dróma hf. (áður SPRON) og Frjálsa fjárfestingarbankans hf. skv. heimild í 3. tl. 9. gr. laga nr. 44/1998, að fjárhæð 16 milljarðar króna. Kaupin eru gerð með fyrirvara um nýtingu forkaupsréttar þriðja aðila. Í kjölfar kaupanna er gert ráð fyrir að endurskoðuð útgáfuáætlun Íbúðalánasjóðs muni leiða til þess að útgáfa sjóðsins á íbúðabréfum verði aukin um allt að 8 milljarða króna að nafnverði á árinu 2010. Endurskoðaðar áætlanir Íbúðalánasjóðs verða birtar fyrir 15. mars nk.
23.2.2010 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum og í samræmi við breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins lækki um 0,05% og verði sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðslu-ákvæði verða 4,50% og 5,00% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Vaxtaákvörðunin tók gildi 23. febrúar. Stjórn Íbúðalánasjóðs lagði til við félags- og tryggingamálaráðherra að hækka vaxtaálag sjóðsins um 0,20% og féllst ráðherra á þá tillögu. Við breytingarnar verður vaxtaálag vegna rekstrar 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna uppgreiðslu-áhættu 0,50%. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa 22. febrúar ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,86%.
15.2.2010 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 2,1 milljörðum króna í janúar, en þar af voru ríflega 700 milljónir króna vegna almennra lána og um 1,4 milljarðar vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins stóðu því nánast í stað frá fyrra mánuði en almenn útlán sjóðsins lækkuðu hins vegar um 50% frá þeim tíma. Meðalútlán almennra lána voru um 7,4 milljónir króna í janúar sem er lækkun um tæplega 16% frá fyrra mánuði. Mánaðarskýrsluna í heild má lesa hér.
27.1.2010 
Á fundi stjórnar Íbúðalánasjóðs 21. janúar sl. var samþykkt að lækka breytilega vexti á leiguíbúðalánum úr 5,40% í 4,90%. Lækkunin gildir við útreikning vaxta frá og með 1. janúar 2010. Fastir vextir leiguíbúðalána haldast óbreyttir og eru nú 4,55% með uppgreiðsluákvæði og 5,05% án uppgreiðsluákvæðis.
12.1.2010 
Viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs sem þurfa að leita sér aðstoðar vegna greiðsluvanda geta nú sent rafrænt inn umsókn til banka, sparisjóða og Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, en ekki er lengur tekið við umsóknum á pappír. Með þessari breytingu er verið að auka áreiðanleika gagna og flýta fyrir afgreiðslu umsókna þar sem heildarferlið er orðið rafrænt.
12.1.2010 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæpum 2,1 milljarði króna í desember. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 600 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins lækkuðu því um 14% frá fyrra mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 8,8 milljónir króna í desember sem er lækkun um 2% frá fyrra mánuði. Heildarútlán sjóðsins námu rétt rúmum 30 milljörðum króna á árinu 2009 samanborið við rúma 64 milljarða króna á árinu 2008 en það samsvarar 48% samdrætti milli ára. Mánaðarskýrsluna í heild má lesa hér.
6.1.2010 
Matsfyrirtækið Standard & Poor´s greindi frá því 6. janúar 2010 að það hefði sett Íbúðalánasjóð á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.
22.12.2009 
Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur samþykkt eftirfarandi reglu um uppgreiðslugjald af þeim lánum sem sjóðurinn hefur keypt eða yfirtekið af öðrum fjármálastofnunum: Ef vextir nýrra útlána sjóðsins fara niður fyrir 4,15% verður innheimt uppgreiðslugjald í samræmi við lög nr. 121/1994, að hámarki 2%. Þessi regla gekk í gildi 1. janúar 2010.
21.12.2009 
Áætluð útgáfa íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs árið 2010 til fjármögnunar nýrra útlána er 34 - 42 milljarðar króna að nafnverði. Áætlað er að ný útlán Íbúðalánasjóðs verði 29 - 37 milljarðar króna á árinu 2010, sem er nokkur lækkun frá áætlunum ársins 2009. Þar af er gert ráð fyrir að leiguíbúðalán verði 11 – 13 milljarðar króna. Íbúðalánasjóður áætlar að greiða lánardrottnum sínum 61 - 69 milljarða króna árið 2010 og er stærstur hluti þeirra tilkominn vegna afborgana íbúðabréfa.
18.12.2009 
Íbúðalánasjóður hefur frá ársbyrjun verið með í skoðun útgáfu á nýjum flokki íbúðabréfa. M.a. hafa verið kannaðir möguleikar á útgáfu á lengri flokki íbúðabréfa en nú er. Talsverð óvissa hefur ríkt um útgáfu íbúðabréfa í tengslum við hugsanleg kaup Íbúðalánasjóðs á fasteignaveðlánasöfnum banka og sparisjóða. Í fjárlögum ársins 2009 var gert ráð fyrir heimild sjóðsins til að kaupa lánasöfn fyrir allt að 100 milljarða króna. Kaup sjóðsins hafa verið mun lægri eða samtals um 14 milljarðar króna. Þá hefur einnig ríkt nokkur óvissa um áhrif vanskila, frystingar lána og annarra greiðsluerfiðleikaúrræða á greiðsluflæði sjóðsins. Í ljósi þessa hefur sjóðurinn fallið frá hugmyndum um útgáfu á nýjum flokki íbúðabréfa í ár og á fyrri hluta ársins 2010, en gerir ráð fyrir að endurskoða málið á síðari hluta næsta árs.
8.12.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 2,4 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 900 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 34% frá fyrra mánuði, sem aðallega skýrist af aukningu á lánum til leiguíbúðafélaga þar sem almenn útlán drógust saman um tæplega 5%. Meðalútlán almennra lána voru um 9 milljónir króna í nóvember sem er um 3% lægra en í fyrra mánuði. Heildarútlán sjóðsins nema því tæpum 29 milljörðum króna það sem af er árinu 2009 en það eru um 44% minni útlán en á sama tímabili árið 2008.
25.11.2009 
Íbúðalánasjóður hefur á undanförnum mánuðum keypt eða yfirtekið skuldabréfasöfn af nokkrum bönkum og sparisjóðum. Hluti þessara lána ber breytilega vexti sem að jafnaði er heimilt að endurskoða á 5 ára fresti. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur nú samþykkt að réttur til að breyta vöxtum skuldabréfa sem sjóðurinn hefur keypt eða yfirtekið af öðrum fjármálastofnunum skuli ekki nýttur í fyrsta sinn sem slíkur réttur myndast. Vextir af þessum skuldabréfum verða því óbreyttir a.m.k. næstu fimm árin. Hefðbundin lán Íbúðalánasjóðs eru hinsvegar með föstum vöxtum.
24.11.2009 
Hvaða áhrif hefur alþjóðlega fjármálakreppan á húsnæðismarkaði norrænu ríkjanna og velferðarkerfi þeirra? Hvernig hefur þróunin verið frá upphafi kreppunnar og hvaða afleiðingar hefur hún haft á búsetuskilyrði heimilanna á Norðurlöndum? Hvaða ályktanir má draga af nýfenginni reynslu? Leitað verður svara við þessum spurningum á ráðstefnu sem haldin verður á Hilton Hótel Nordica nk. fimmtudag, 26. nóvember. Félags- og tryggingamálaráðuneytið skipuleggur ráð-stefnuna með stuðningi norrænu ráðherra-nefndarinnar í samstarfi við Íbúðalánasjóð og Samband íslenskra sveitarfélaga. Allir eru velkomnir og er þátttaka ókeypis. Nánar hér.
23.11.2009 
Fasteignaveðlán einstaklinga voru nýlega með lögum sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun. Útrunninn er frestur til að afþakka greiðslujöfnun fasteignaveðlána vegna gjalddaga 1. desember. 23.146 einstaklingar afþökkuðu greiðslujöfnun á 38.087 lánum. Þetta eru 47,7% þeirra einstaklinga sem eru lántakar hjá Íbúðalánasjóði og 46,7% af fjölda lána. Áfram er hægt að afþakka greiðslu- jöfnun vegna gjalddaga um miðjan desember og síðar, en það þarf að gerast í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.
20.11.2009 
Í gær rann út frestur til að afþakka greiðslujöfnun fasteignaveðlána vegna gjalddaga í desember, en öll slík lán voru nýlega með lögum sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun. 23.146 einstaklingar afþökkuðu greiðslujöfnun á 38.087 lánum. Þetta eru 47,7% þeirra einstaklinga sem eru lántakar hjá Íbúðalánasjóði og 46,7% af fjölda lána. Þar af eru 14.709 lántakendur í Reykjavík og 8.437 á landsbyggðinni. Í aldurshópnum 50 - 60 ára er hæsta hlutfall þeirra sem afþakka greiðslujöfnun, eða 50,9%, en fæstir afþakka meðal þeirra sem eru yngri en 30 ára, eða 29,6%.
19.11.2009 
Í dag eru síðustu forvöð að afþakka greiðslujöfnun fasteignaveðlána vegna gjalddaga í desember, en öll slík lán voru nýlega með lögum sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun. Um kl. 16:00 í dag höfðu 21.179 einstaklingar afþakkað greiðslujöfnun á 34.787 lánum. Þetta eru 43,7% þeirra einstaklinga sem eru lántakar hjá Íbúðalánasjóði og 42,6% af fjölda lána. Þar af er 13.401 lántakandi í Reykjavík og 7.778 á landsbyggðinni. Hægt er að afþakka greiðslujöfnun til miðnættis á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, ils.is.
11.11.2009 
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í Baa3 úr Baa1. Lækkunin kemur í kjölfar lækkunar á lánshæfismati íslenska ríkisins í Baa3 úr Baa1. Horfur fyrir Íbúðalánasjóð eru stöðugar eins og fyrir íslenska ríkið. Skýrslu Moody´s er að finna hér.
10.11.2009 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmlega 1,8 milljörðum króna í október. Þar af voru rúmir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og tæpar 300 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins drógust saman um tæp 38% frá fyrra mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 9,3 milljónir króna í október sem er um 7% lægra en í september. Heildarútlán sjóðsins nema rúmum 26 milljörðum króna það sem af er árinu 2009 en það eru um 51% minni útlán en á sama tímabili árið 2008.
4.11.2009 
Hver eru áhrif alþjóðlegu fjármálakreppunnar á húsnæðismarkað á Norðurlöndum? Hverjar eru afleiðingarnar fyrir velferðarkerfið? Hvað þýðir þessi óheillaþróun fyrir afkomu heimilanna? Hver verður stefnumótun ríkjanna í húsnæðismálum í kjölfar breyttra forsendna? Leitað verður svara við þessum mikilvægu spurningum á ráðstefnu sem haldin verður á Hótel Nordica 26. nóvember nk. Ráðstefnan er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Félags- og tryggingamálaráðuneytið skipuleggur hana í samstarfi við Íbúðalánasjóð og Samband íslenskra sveitarfélaga. Ráðstefnan er öllum opin. Nánar hér.
23.10.2009 
Ný lög um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna bankahrunsins voru samþykkt á Alþingi 23. október sl. Þar með urðu breytingar á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga nr. 63/1985. Sett er þak á greiðslujöfnun fasteignaveðlána þannig að lán lengjast að hámarki um þrjú ár vegna greiðslujöfnunar. Ef einhverjar eftirstöðvar eru af láninu að þeim tíma liðnum falla þær niður. Öll verðtryggð fasteignaveðlán sem eru í skilum fara sjálfkrafa í greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember nema lántaki sæki sérstaklega um að svo verði ekki.
Afþakka má greiðslujöfnun hér.
23.10.2009 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,55% (voru 4,60%) og 5,05% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis (áður 5,10%). Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 23. október 2009. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 22. október s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,10%.

22.10.2009 
Ársskýrsla Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2008 er komin á vef sjóðsins. Ákveðið var að prenta ársskýrsluna ekki að þessu sinni en gefa hana aðeins út í rafrænu formi. Í skýrslunni eru m.a. reifaðir helstu atburðir síðasta árs hjá sjóðnum, sagt frá þróun útlána 2004 - 2008 og rekstri Íbúðalánasjóðs 2008. Ársreikningur 2008 fylgir með ársskýrslunni. Ársskýrsluna má sjá hér.
15.10.2009 
Styrkir Íbúðalánasjóðs vegna tækninýjunga og umbóta í byggingariðnaði árið 2009 voru veittir við hátíðlega athöfn í Borgartúni 21 miðvikudaginn 14. október. Að þessu sinni voru veittir 19 styrkir, samtals að fjárhæð 19,3 milljónir króna. 53 umsóknir um styrki bárust í ár. Íbúðalánasjóður veitir árlega fjárstyrki til tækninýjunga eða annarra umbóta í byggingariðnaði í samræmi við ákvæði laga um húsnæðismál og reglugerð nr. 458/1999 um lánaflokka Íbúðalánasjóðs.
6.10.2009 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmlega 2,9 milljörðum króna í september. Þar af voru rúmir 1,8 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,1 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 84% frá fyrra mánuði sem má að mestu rekja til aukningar í leiguíbúðalánum. Meðalútlán almennra lána voru um 10 milljónir króna í september sem er um 2% aukning frá fyrra mánuði. Heildarútlán sjóðsins námu rúmum 6,9 milljörðum á þriðja ársfjórðungi sem er um 15% minna en á öðrum ársfjórðungi og um 35% minna en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Heildarútlán sjóðsins nema því rúmum 24,4 milljörðum það sem af er árinu 2009 en það eru um 51% minni útlán en á sama tímabili árið 2008.
30.9.2009 
Í júlímánuði birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun um útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar var gert ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að fjárhæð 7-9 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi ársins. Íbúðalánasjóður hefur nú ákveðið að ekki verði farið í nein útboð íbúðabréfa á þriðja ársfjórðungi. Útlán sjóðsins hafa verið minni á þriðja ársfjórðungi en gert var ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. Endurskoðaðar áætlanir Íbúðalánasjóðs verða birtar í októberbyrjun.
17.9.2009 
Nú þurfa viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs að auðkenna sig með veflykli RSK eða rafrænum skilríkjum til að gera greiðslumat og sækja um lán hjá Íbúðalánasjóði. Þessi breyting er gerð í samstarfi við island.is. Öryggi viðskiptavina verður mun meira en áður þar sem tryggt er að ekki sé hægt að gera greiðslumat eða sækja um lán í annars nafni. Helsta breytingin fyrir viðskiptavini við gerð greiðslumats er að ekki verður þörf á nýskráningu heldur er veflykillinn eða rafræna skilríkið notað til að skrá sig inn á greiðslumatssíðuna. Til að sækja um lán er sama leið notuð til innskráningar, en ekki dugir að nota kennitölu og greiðslumatsnúmer eins og áður var gert.
8.9.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæpum 1,6 milljörðum króna í ágúst. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmlega 100 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins drógust því saman um rúm 36% frá fyrra mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 9,8 milljónir króna í ágúst, sem er um 3% minna en í fyrra mánuði. Þar með nema heildarútlán sjóðsins rúmum 21,4 milljörðum það sem af er árinu 2009, sem eru um 46% minni útlán en á sama tímabili árið 2008.
31.8.2009 
Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2009 var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins í dag, 31. ágúst 2009. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reiknings-skilastaðla (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34. Hagnaður var af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 463 millj. kr. skv. rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 13.748 millj. kr. skv. efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sjóðsins, sem reiknað er skv. ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð, er 4,3%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%.
14.8.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 2,4 milljörðum króna í júlí. Þar af voru rúmir 1,7 milljarðar vegna almennra lána og tæpar 700 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins drógust því saman um rúm 6,9 % frá fyrri mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 10,1 milljón króna í júlí sem er um 5% lækkun frá fyrri mánuði. Alls lánaði Íbúðalánasjóður um 8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi sem er um 15% minna en á fyrsta fjórðungi ársins. Heildarútlán fyrstu sex mánuði ársins voru því um 17,4 milljarðar en það eru um 30% minni útlán en á fyrstu sex mánuðum ársins 2008.
12.8.2009 
Fyrstu sjö mánuði þessa árs bárust 2066 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika til Íbúðalánasjóðs. Það er mikil aukning frá fyrra ári, en þá voru slíkar umsóknir 1404 allt árið. Árin á undan voru umsóknir um úrræði vegna greiðsluvanda mun færri, eða 377 árið 2007, 378 árið 2006 og 412 árið 2005. Umsóknum af þessu tagi tók að fjölga mjög eftir bankahrunið sl. haust og hafa þær verið 200 til 350 á mánuði undanfarna 10 mánuði.
10.8.2009 
Félags- og tryggingamálaráðherra undirritaði nýlega reglugerð um breytingu á reglugerð um lánshlutfall og fjárhæð ÍLS-veðbréfa, nr. 540/2006, sem lækkar lágmarkslánsfjárhæð ÍLS-veðbréfa til endurbóta á húsnæði eða viðauka við það úr 570.000 krónum í 400.000 krónur. Breytingin er einkum til hagsbóta fyrir eigendur minnstu íbúða í fjölbýlishúsum og eigendur íbúðarhúsnæðis sem hafa átt í erfiðleikum með fjármögnun smærri framkvæmda. Vonir standa til að þessi breyting ýti undir framkvæmdir og auðveldi fólki að ráðast í endurbætur á húsnæði sínu.
21.7.2009 
Vaxtabætur renna ekki lengur sjálfkrafa upp í gjaldfallnar afborganir og vexti af lánum Íbúðalánasjóðs eins og áður var. Vaxtabætur greiðast út að lokinni álagningu opinberra gjalda þegar dregin hafa verið frá opinber gjöld til ríkis og sveitarfélaga, ofgreiddar greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og vangreidd meðlög. Gjaldfallnar afborgarnir og vextir af lánum Íbúðalánsjóðs eru hins vegar ekki lengur dregnar frá vaxtabótum áður en þær koma til útborgunar. Þeir sem eru í vanskilum við sjóðinn þurfa því að ráðstafa vaxtabótum sínum sjálfir til að greiða skuld sína.
20.7.2009 
Afgreiðsla Íbúðalánasjóðs í Borgartúni 21 í Reykjavík verður lokuð frá kl. 11:30 – 13 í dag vegna veðurs. Þjónustuverið er opið og hægt að hafa samband í síma 569 6900 eða á Netinu í allan dag.
7.7.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 2,6 milljörðum króna í júní. Þar af voru rúmir 1,9 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 700 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 3,6 % frá fyrri mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 10,6 milljónir króna í júní, sem aukning um 11% frá fyrri mánuði. Alls lánaði Íbúðalánasjóður um 8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi, sem er um 15% minna en á fyrsta fjórðungi ársins. Heildarútlán fyrstu sex mánuði ársins voru því um 17,4 milljarðar, en það eru um 30% minni útlán en á fyrstu sex mánuðum ársins 2008.
26.6.2009 
Matsfyrirtækið Moody's greindi frá því fimmtudaginn 25. júní sl. að það hefði staðfest Baa1 lánshæfismat Íbúðalánasjóðs. Horfur eru áfram neikvæðar. Nánar má lesa um lánshæfismatið í skýrslu Moody´s hér.
18.6.2009 
Íbúðalánasjóður ákvað í kjölfar útboðs á íbúðabréfum að lækka útlánavexti sjóðsins. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði eru nú 4,60% og 5,10% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Vextirnir voru áður 4,70% og 5,20%. Vaxtaákvörðunin sem tók gildi 18. júní sl. byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 16. júní ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,14%.
9.6.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 2,5 milljörðum króna í maí. Þar af voru rúmir 1,8 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 700 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins drógust saman um tæplega 11% frá fyrra mánuði. Heildarútlán á fyrstu fimm mánuðum ársins nema tæpum 14,8 milljörðum, sem eru um 26% minni útlán en á sama tímabili 2008. Heildarvelta íbúðabréfa í maí nam tæplega 64,3 milljörðum, sem er 46% meiri velta en í fyrri mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur 332,5 milljörðum það sem af er árinu 2009. Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu um 701 milljón króna í maí og var stærstur hluti þeirra afborganir vegna húsnæðisbréfa.
2.6.2009 
Íbúðalánasjóði hafa borist 1502 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika það sem af er árinu, þ.e. fyrstu fimm mánuði ársins. Þetta eru nær 100 fleiri umsóknir en allt árið í fyrra, þegar umsóknir vegna greiðsluvanda voru alls 1405. Aldrei áður höfðu borist svo margar umsóknir á einu ári og nú er það met þegar slegið þótt árið sé ekki hálfnað. Umsóknirnar á þessu ári skiptast nokkuð jafnt milli mánaða nema í apríl, en þá voru þær fæstar. 305 umsóknir bárust í janúar, 321 í febrúar, 316 í mars, 233 í apríl og 327 í maí.
16.5.2009 
Samkvæmt frétt sem birtist á Bylgjunni og Stöð 2 föstudaginn 15. maí hefði mátt ætla að heildarvanskil af lánum Íbúðalánasjóðs væru 38 – 39 milljarðar króna. Það er fjarri lagi. Lánsfjárhæðin sem slík er ekki skilgreind sem vanskil, heldur aðeins vanskilafjárhæðin, þ.e. ógreidd afborgun. Raunveruleg vanskil við Íbúðalánasjóð eru nú rúmar 800 milljónir króna. Hlutfall vanskila af útlánum Íbúðalánasjóðs er nú 0,14%, en var 1. janúar sl. 0,10%. Ári áður, 1. janúar 2008, var þetta hlutfall 0,05%. Hlutfall vanskila af heildarútlánum fyrstu fjóra mánuði ársins er nær þrefalt hærra en á sama tíma í fyrra.
12.5.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 2,8 milljörðum króna í apríl. Þar af voru rúmir 1,9 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 900 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæplega 14% frá fyrra mánuði. Heildarútlán sjóðsins á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru rúmlega 12,2 milljarðar, sem eru um 19% minni útlán en á sama tíma ársins 2008. Meðalútlán almennra lána voru um 10,6 milljónir króna í apríl, sem er sambærilegt við fyrri mánuði ársins. Heildarvelta íbúðabréfa í apríl nam rúmlega 43,9 milljörðum, en það er 43% minni velta en í fyrri mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur 268,3 milljörðum það sem af er árinu 2009.
12.5.2009 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins breytist sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,70% (voru 4,90%) en 5,20% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis (voru 5,40%). Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 12. maí 2009. Hún byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 11. maí s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,24%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.
11.5.2009 
18. maí nk. verða liðin 80 ár frá því að frumvarp Héðins Valdimarssonar um verkamannabústaði var samþykkt sem lög frá Alþingi. Af því tilefni halda Bókasafn Dagsbrúnar og Reykjavíkurakademían í samstarfi við stéttarfélagið Eflingu og Alþýðusamband Íslands málþing um verkamannabústaðina og þróun félagslegra íbúðabygginga á Íslandi frá upphafi fram til okkar daga. Málþingið verður haldið föstudaginn 15. maí nk. í Reykjavíkur-akademíunni, Hringbraut 121, og hefst kl. 13.00. Meðal fyrirlesara á málþinginu er Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs.
29.4.2009 
Íbúðalánasjóður veitir árlega fjárstyrki til tækninýjunga eða annarra umbóta í byggingariðnaði í samræmi við ákvæði laga um húsnæðismál. Lán eða styrki má veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar á byggingarkostnaði og viðhaldi íbúðar-húsnæðis, styttri byggingartíma eða stuðlað með öðrum hætti að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði. Þeir sem óska eftir láni eða styrk skulu skila inn umsóknum til Íbúða-lánasjóðs. Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k.
24.4.2009 
Félagsmálaráðherra hefur staðfest breytingar á reglugerð um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf. Meðal nýmæla er að nú þurfa aðeins að líða 10 ár frá fokheldi íbúðarhúsnæðis til að unnt sé að fá lán til breytinga á húsnæðinu. Áður var miðað við 15 ár. Þá er nú heimilt að kaupa ÍLS-veðbréf vegna lóðaframkvæmda, svo sem hellulagnar eða smíði sólpalla. Lánin geta verið til styttri tíma en áður, allt niður í 5 ár. Tími sem má líða frá úttekt að lánsumsókn lengist úr 6 í 12 mánuði. Heimilt er að afgreiða ÍLS-veðbréf áður en framkvæmdir hefjast.
22.4.2009 
Nýsamþykkt lög um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði ganga í gildi 15. maí nk. Ef eigandi íbúðarhúsnæðis sýnir fram á að hann sé og verði um einhvern tíma ófær um að standa í fullum skilum á greiðslu skulda sem tryggðar eru með veði í því húsnæði - og að önnur greiðsluerfiðleikaúrræði séu ófullnægjandi - getur hann leitað eftir greiðsluaðlögun vegna þeirra og getur hún staðið í allt að fimm ár. Þá verða aðeins gjaldkræfar greiðslur sem skuldaranum telst fært að standa straum af, en frestað er gjalddaga þess hluta skuldbindinganna sem eftir er, svo lengi sem greiðsluaðlögun stendur. Leita þarf eftir greiðsluaðlögun með skriflegri beiðni til héraðsdómstóls þar sem viðkomandi á lögheimili.
20.4.2009 
Endurskoðuð áætluð útgáfa íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs árið 2009 til fjármögnunar nýrra útlána er 33-38 milljarðar króna, sem er lækkun um 3-6 milljarða frá fyrri tölum. Áætlað er að ný útlán sjóðsins verði 41-47 milljarðar króna á þessu ári, sem er lækkun um 8-10 milljarða frá fyrri áætlun. Töluverð óvissa ríkir um útlána- og útgáfuáætlanir í ljósi breyttra aðstæðna á fjármála- og fasteignamarkaði. Nákvæmar tölur um áætluð útlán og útgáfu íbúðabréfa er því ekki hægt að gefa upp. Íbúðalánasjóður áætlar að greiða lánardrottnum sínum 59-65 milljarða króna á árinu, en það er lækkun um 2 milljarða frá fyrri áætlun.
20.4.2009 
Viera Tombanova, félagsmálaráðherra Slóvakíu, var í heimsókn hér á landi í liðinni viku til að kynna sér íslenska velferðarkerfið. Hún kom í Íbúðalánasjóð og ræddi við Guðmund Bjarnason framkvæmdastjóra og Ívar Ragnarsson, sviðsstjóra fjármálasviðs. Rætt var m.a. um sögu húsnæðislána, helstu breytingar á fjármögnun sjóðsins og stöðu hans í dag, úrræði í greiðsluerfiðleikum og áhrif efnahagsþrenginganna á sjóðinn. Ráðherrann kynnti sér einnig í heimsókn sinni vinnumarkaðsmál, stöðu innflytjendamála og lífeyrissjóðakerfið hér á landi.
8.4.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 2,5 milljörðum króna í mars. Þar af voru tæpir 1,9 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 600 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins drógust saman um rúm 33% frá fyrri mánuði. Heildarútlán sjóðsins á fyrsta ársfjórðungi voru rúmlega 9,4 milljarðar sem eru 14,1% minni útlán en á fyrsta ársfjórðungi árið 2008. Meðalútlán almennra lána voru um 10,6 milljónir króna í mars sem er sambærilegt fyrri mánuði. Hér er skýrslan í heild.
6.4.2009 
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hafa 942 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika borist til Íbúðalánasjóðs. Úrræði vegna greiðsluvanda geta verið t.d. skuldbreyting vanskila, frestun á greiðslum og lenging lána. Allt árið í fyrra voru umsóknir vegna greiðsluerfiðleika 1405, en 377 í hitteðfyrra. Að auki er um að ræða greiðslujöfnun fasteignaveðlána, sem var lögfest í nóvember 2008. Frá því að opnað var fyrir umsóknir um greiðslujöfnun, 25. nóvember í fyrra, hafa borist 529 umsóknir. Afgreiðslu er lokið vegna 261 umsóknar um greiðslujöfnun, en hinar eru enn í vinnslu.
3.4.2009 
Félags- og tryggingamálaráðuneytið, viðskiptaráðuneytið og Íbúðalánasjóður annars vegar og Samtök fjármálafyrirtækja, f.h. aðildarfélaga sinna, Landssamtök lífeyrissjóða, f.h. aðildarsjóða sinna, og skilanefnd SPRON hins vegar hafa gert með sér samkomulag um samræmda beitingu greiðsluerfiðleikaúrræða gagnvart einstaklingum og heimilum sem eru í greiðsluerfiðleikum vegna fasteignaveðlána. Hér má lesa samninginn.
23.3.2009 
Sparisjóðurinn í Keflavík og Íbúðalánasjóður hafa samið um að sparisjóðurinn selji Íbúðalánasjóði safn skuldabréfa, að fjárhæð um 10 milljarðar króna, tryggt með veði í íbúðarhúsnæði, í samræmi við heimild til slíkra kaupa skv. lögum nr. 125/2008, reglugerð nr. 1081/2008 og reglur Íbúðalánasjóðs um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja. Íbúðalánasjóður mun greiða 80% af uppreiknuðu virði safnsins með afhendingu íbúðabréfa. Eftirstöðvarnar, eða 20%, er krafa Sparisjóðsins í Keflavík á Íbúðalánasjóð sem mun verða gerð upp að 8 árum liðnum.
20.3.2009 
Í ársreikningi Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2008 kemur fram að tap af rekstri sjóðsins nam 6,9 milljörðum króna. Eigið fé hans í árslok var 13.285 milljónir króna. Eins og fram kom í tilkynningu Íbúðalánasjóðs í nóvember sl. varð hann fyrir verulegum skakkaföllum vegna falls þriggja stærstu banka landsins. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 4,6% og er það reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Í árslok námu útlán 680.406 milljónum kr. og hækkuðu um 117.379 millj. kr. á árinu. Lántaka sjóðsins nam 708.497 millj. kr. og hækkaði um 129.749 millj. kr. á árinu.
13.3.2009 
Framkvæmdastjóri Hjartaheilla, sem eru landssamtök hjartasjúklinga, heimsótti starfsmenn Íbúðalánasjóðs 13. mars sl. og kynnti starfsemi samtakanna og mikilvægi þess að vera meðvitaður um helstu áhættuþætti hjartasjúkdóma. Fyrir síðustu jól var ákveðið að Íbúðalánasjóður sendi ekki út jólakort til helstu viðskiptavina en styrkti þess í stað Hjartaheill með samsvarandi fjárhæð sem nemur 350.000 krónum. Auk þess keypti sjóðurinn barmmerki Hjartaheilla fyrir starfsfólk sitt og studdi þannig þjóðarátak samtakanna, „Hjartans mál“, til söfnunar á hjartaþræðingartæki fyrir Landspítalann.
12.3.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 3,3 milljörðum króna í febrúar. Þar af voru tæplega 2,3 milljarðar vegna almennra lána og tæpur 1,1 milljarður vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins drógust því saman um tæp 6% frá fyrra mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 10,7 milljónir króna í febrúar sem sambærilegt fyrri mánuð. Sjá mánaðarskýrslu í heild.
10.3.2009 
Yfirtaka Fjármálaeftirlitsins á Straumi í gær, mánudaginn 9. mars 2009, hefur ekki áhrif á fjárhagslega stöðu Íbúðalánasjóðs. Laust fé sjóðsins hefur einvörðungu verið ávaxtað á innlendum innlánsreikningum og með ríkisverðbréfum frá hruni bankanna í október síðastliðnum. Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands frá þeim tíma, eru innstæður í íslenskum bankastofnunum tryggðar að fullu. Samkvæmt neyðarlögum nr. 125/2008 eru innlán einnig forgangskröfur við gjaldþrotaskipti.
9.3.2009 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 6. mars 2009 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,47%.
Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
8.3.2009 
1. janúar sl. voru liðin tíu ár frá því að Íbúðalánasjóður hóf starfsemi, en hann var stofnaður með lögum 1998 og tók til starfa í ársbyrjun 1999. Af þessu tilefni var núverandi og fyrrverandi starfsmönnum ásamt félagsmálaráðherra og stjórn Íbúðalánasjóðs boðið til afmælishófs í Reykjavík föstudaginn 6. mars. Afmælishóf verður einnig á Sauðárkróki 13. mars fyrir starfmenn sem búa og starfa fyrir norðan.
6.3.2009 
Íbúðalánasjóður mun birta ársreikning sinn fyrir árið 2008 í viku 12, 2009.
24.2.2009 
Í frétt Morgunblaðsins 24. febrúar með fyrirsögninni „Skuldafen húseigenda“ á bls. 8 er birt tafla með útreikningum á tveimur lánum sem sögð eru lán Íbúðalánasjóðs (ILS). Í hvorugu þessara tilfella er um lán frá sjóðnum að ræða og munar þar nokkru.
13.2.2009 
Í viðhorfskönnun meðal fasteignakaupenda sem Capacent Gallup gerði nýlega kemur fram að 94,1% þeirra eru jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði. Jákvæðni gagnvart sjóðnum meðal fasteignakaupenda hefur aldrei verið meiri frá því að slíkar mælingar hófust. 95% fasteignakaupenda telja nú að Íbúðalánasjóður eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd, en rúm 81 prósent voru þeirrar skoðunar í ársbyrjun 2006.
12.2.2009 
Stjórn Íbúðalánasjóðs samþykkti á fundi sínum 5. febrúar sl. að hafin yrði könnun á stofnun nýs flokks íbúðabréfa með lengri líftíma en núverandi útgáfa býður upp á. Slík útgáfa fellur vel að greiðsluflæði sjóðsins, en almenn útlán hans eru nú til allt að 40 ára og hægt er að lengja þau til allt að 70 ára að vissum skilyrðum uppfylltum. Þá eru leiguíbúðalán til allt að 50 ára og fer hlutfall þeirra af heildarútlánum sjóðsins hækkandi.
11.2.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæplega 3,6 milljörðum króna í janúar. Þar af voru tæpir 2,2 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,4 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Meðalútlán almennra lána voru um 10,7 milljónir króna í janúar en það er um 14% minna en í fyrra mánuði. Ef miðað er við sama tíma í fyrra þá hafa meðalútlán almennra útlána hækkað um rúmlega 11%.
9.2.2009 
Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, heimsótti Íbúðalánasjóð föstudaginn 6. febrúar og ræddi við starfsfólk. Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, kynnti ráðherra starfsemina og saman ræddu þau um hlutverk sjóðsins og horfur á húsnæðismarkaði við þær erfiðu aðstæður sem nú eru í samfélaginu. Ráðherra lagði áherslu á það að Íbúðalánasjóður gegndi afar mikilvægu hlutverki við núverandi aðstæður. Hún þakkaði starfsfólkinu fyrir framlag þess á síðustu mánuðum og óskaði því velfarnaðar í brýnum verkefnum framundan.
5.2.2009 
Nýlega voru undirritaðir tveir samstarfssamningar til þriggja ára milli Íbúðalánasjóðs og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Hagfræðistofnun tekur að sér að meta fjárhagslega áhættu Íbúðalánasjóðs og framkvæmir í því skyni með reglubundnu millibili fjárhagslegt áhættumat fyrir sjóðinn. Þá mun Hagfræðistofnun fylgjast með þróun og horfum á húsnæðismarkaði og skila reglulegum skýrslum um þau efni árlega. Haldnar verða málstofur og námskeið eftir því sem tilefni gefst fyrir starfsfólk Íbúðalánasjóðs um ýmis málefni sem lúta að starfssviði sjóðsins.
2.2.2009 
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur sett tvær reglugerðir um starfsemi Íbúðalánasjóðs. Helstu nýmælin felast í nýjum lánaflokki sem heimilar lánveitingar til endurbóta og viðhalds á leiguíbúðum, rýmri heimildum til að veita fötluðum einstaklingum aukalán vegna sérþarfa og heimild til veðlánaflutninga milli leiguíbúða sem eru í eigu sama lántakanda.
26.1.2009 
Í viðhorfsrannsókn sem Capacent Gallup gerði nýlega fyrir Íbúðalánasjóð kom í ljós að jákvæðni gagnvart sjóðnum meðal almennings hefur ekki verið meiri frá því að reglubundnar mælingar á viðhorfum í garð Íbúðalánasjóðs hófust. Alls segjast 81,7% jákvæðir í garð Íbúðalánasjóðs, þar af eru 45% mjög jákvæðir og 36,7% frekar jákvæðir. 93,8 prósent telja að Íbúðalánasjóður eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd. Þessi tala hefur líka hækkað jafnt og þétt í könnunum á undanförnum árum. 55,7% sögðust ánægðir með að húsnæðislán sem ekki er hjá Íbúðalánasjóði yrði fært til sjóðsins.

23.1.2009 
Með lögum nr. 125/2008 var Íbúðalánasjóði heimilað að kaupa skuldabréf af fjármálafyrirtækjum sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði. Í framhaldi af setningu laganna setti félagsmálaráðherra reglugerð nr. 1081/2008 um þessi fyrirhuguðu kaup. Þar kemur fram að endurgreiðslur fyrir skuldabréfin skuli að jafnaði vera í formi íbúðabréfa. Í 2. gr. reglugerðar nr. 1081/2008 kemur fram að forsenda þess að Íbúðalánasjóður gangi til samninga við fjármálastofnun um kaup á skuldabréfum sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði sé að viðkomandi fjármálastofnun hafi fyrst óskað eftir slíkum samningum. Á fundi sínum 8. janúar s.l. samþykkti stjórn Íbúðalánasjóðs reglur um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja og hefur félagsmálaráðherra staðfest þær reglur og þær verið birtar í Stjórnartíðindum.

19.1.2009 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Vaxtaákvörðunin byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 16. janúar 2009 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,44%.

15.1.2009 
Í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða er við hækkun á tekju- og eignamörkum miðað við árlega hækkun neysluverðsvísitölu 1. janúar ár hvert. Hækkunin nemur nú 18,13%.
Uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðarinnar eru eftirfarandi: Tekjur fyrir einstakling 3.358.000 kr., tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 562.000 kr. og tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 4.702.000 kr. Eignamörk eru 3.625.000 kr.
14.1.2009 
Vextir leiguíbúðalána Íbúðalánasjóðs með breytilegum vöxtum hafa verið hækkaðir úr 5,25% í 5,40%. Hækkunin miðast við 1. janúar 2009. Á liðnu ári voru nær öll lán til almennra leiguíbúða úr þessum flokki, en lengst af þeim tíma sem þessi lánaflokkur hefur verið í boði hefur hann verið rekinn á neikvæðum vaxtamun. Því samþykkti stjórn Íbúðalánasjóðs að hækka vextina til þess að jafnvægi verði náð í lánaflokknum.
9.1.2009 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæplega 6,7 milljörðum króna í desember. Þar af voru rúmlega 4,2 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 2,5 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Alls lánaði sjóðurinn um 17,0 milljarða á fjórða ársfjórðungi . Heildarútlán sjóðsins á árinu 2008 námu rúmum 64,4 milljörðum samanborið við 67,8 milljarða á árinu 2007.
30.12.2008 
Frá og með 1.janúar 2009 hættir Íbúðalánasjóður að senda greiðsluseðla á pappír til viðskiptavina sinna. Allir greiðsluseðlar eru orðnir rafrænir og birtast í heimabönkum. Þeir sem óska eftir að fá senda pappírsseðla geta fyllt út rafræna umsókn á www.ils.is eða haft samband við þjónustuver Íbúðalánasjóðs í síma 569 6900 eða 800 6969.
22.12.2008 
Lokað verður hjá Íbúðalánasjóði á aðfangadag. Opnað verður aftur mánudaginn 29. desember.
19.12.2008 
Áætluð útgáfa íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs árið 2009 til fjármögnunar nýrra útlána er 36 – 44 milljarðar króna.
Íbúðalánasjóður áætlar að ný útlán sjóðsins verði á bilinu 49 – 57 milljarðar króna á árinu 2009, sem er nokkur lækkun frá áætlunum ársins 2008. Þar af er gert ráð fyrir að leiguíbúðalán verði á bilinu 14 – 16 milljarðar króna. Sjá áætlun.
18.12.2008 
Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að senda engin jólakort að þessu sinni, en styrkja þess í stað Hjartaheill, landssamtök hjartasjúklinga. Samtökin fá 250.000 kr. styrk.
17.12.2008 
Þann 16. desember var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við útgáfu íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá 17. desember 2008 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig  „aðalmiðlara með íbúðabréf." Þær eru: Nýi Glitnir banki hf., Nýi Kaupþing banki hf., MP banki hf., NBI hf. og Straumur - Burðarás Fjárfestingarbanki hf.
Með undirritun nýrra samninga fellur úr gildi „Samningur um aðalmiðlarakerfi við útboð íbúðabréfa og um viðskiptavakt íbúðabréfa á eftirmarkaði,“ dagsettur 18. júní s.l.
16.12.2008 
Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að bjóða aðilum OMX Nordic Exchange á Íslandi að gerast aðilar að samningum í tengslum við aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með íbúðabréf.
Aðilar að OMX Nordic Exchange á Íslandi sem tilbúnir eru að takast á herðar þær kröfur sem samningurinn gerir og hyggjast gerast viðskiptavakar íbúðabréfa þurfa að undirrita samning í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði milli kl. 15:00 og 16:00, þriðjudaginn 16. desember 2008 í Íbúðalánasjóði. Sjá sýnishorn af samningi í tengslum við viðskiptavakt á
eftirmarkaði.
11.12.2008 
Alþingi hefur samþykkt frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál. Samkvæmt lögunum er nú heimilt að lengja lánstíma lána Íbúðalánasjóðs vegna greiðsluerfiðleika í allt að 30 ár í stað 15 ára og hámarkslánstími hjá sjóðnum er lengdur úr 55 árum í 70 ár. Þá er sjóðnum nú heimilt að leigja fólki húsnæði sem það missir.
9.12.2008 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 4,3 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæplega 3,2 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,1 milljarður vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins það sem af er árinu 2008 nema rúmum 53 milljörðum samanborið við 62,7 milljarða á fyrstu 11 mánuðum ársins 2007. Meðalútlán almennra lána námu um 10,9 milljónum króna í nóvember og drógust saman um 6,83% frá fyrra mánuði.
5.12.2008 
Matsfyrirtækið Moody's greindi frá því í gær, 4. desember 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í Baa1 úr A1. Horfur eru neikvæðar. Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands. Sjá umfjöllun.
27.11.2008 
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð um heimild Íbúðalánasjóðs til að yfirtaka íbúðaveðlán fjármálafyrirtækja. Reglugerðin er sett með stoð í nýju ákvæði í lögum um húsnæðismál sem samþykkt var á Alþingi 6. október sl. vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Hvorki Íbúðalánasjóður né einstaklingar geta haft frumkvæði að því að lán flytjist til sjóðsins heldur þurfa fjármálastofnanir að óska eftir því að Íbúðalánasjóður yfirtaki íbúðaveðlán.
26.11.2008 
Viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs geta nú óskað eftir greiðslujöfnun lána, telji þeir það þjóna hagsmunum sínum. Sækja þarf um greiðslujöfnun a.m.k. 11 dögum fyrir gjalddaga láns. Sótt er um rafrænt á vefsíðu Íbúðalánsjóðs. Lánin þurfa að vera í skilum og mega hvorki vera í frystingu né með fyrri greiðslujöfnun. Greiðslujöfnun felur á engan hátt í sér eftirgjöf á skuldum, heldur er um að ræða frestun afborgana að hluta til.
25.11.2008 
Frestur til að sækja um greiðslujöfnun íbúðalána sem koma á til framkvæmda á gjalddaga í desember rennur út kl. 16:00 í dag, þriðjudaginn 25. nóvember. Sótt er um rafrænt á www.ils.is. Greiðslujöfnun vegna umsókna sem berast eftir kl. 16:00 í dag tekur gildi á næsta gjalddaga lánsins, 15. desember 2008 eða 1. janúar 2009. Framvegis þarf að sækja um greiðslujöfnun eigi síðar en 11 dögum fyrir gjalddaga. 
25.11.2008 
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því 24. nóvember 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt í 'BBB-' úr 'BBB'. Horfur eru neikvæðar. Lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum var staðfest 'BBB'. Horfur eru neikvæðar. Þá voru einkunnir fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og erlendri mynt staðfestar, 'A-3'. Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands. Skýrsla Standard & Poor´s.
23.11.2008 
Frestur til að sækja um greiðslujöfnun fasteignaveðlána sem koma skal til framkvæmda í desember n.k. er til þriðjudagsins 25.nóvember. Umsóknir þurfa því að berast eigi síðar en þann dag, þriðjudaginn 25. nóvember. Framvegis þurfa umsóknir að berast 11 dögum fyrir gjalddaga lánsins.
21.11.2008 
Vegna vinnu við greiðslumats-og umsóknarkerfi Íbúðalánsjóðs mun kerfið liggja niðri um helgina. Kerfið verður aftur virkt klukkan 09:00 á mánudaginn 24.nóvember. Beðist er velvirðingar á þessu.
19.11.2008 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 6,4 milljörðum króna í október. Þar af voru tæplega 4,7 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,7 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins á árinu nema rúmum 53,7 milljörðum samanborið við 55,8 milljarða á fyrstu 10 mánuðum ársins 2007. Meðalútlán almennra lána námu um 11,7 milljónum króna í október og jukust lítillega frá fyrra mánuði eða um 3,5%.
18.11.2008 
Frumvarp um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga var samþykkt á Alþingi 17. nóvember sl. Viðskiptavinir lánastofnana með verðtryggð fasteignaveðlán geta óskað eftir greiðslujöfnun til að létta tímabundið á greiðslubyrði lána sinna, telji þeir þessa leið henta aðstæðum sínum.
18.11.2008 
Íbúðalánasjóður hefur ekki farið varhluta af þeirri kreppu sem ríkt hefur á
fjármagnsmörkuðum undanfarnar vikur og ljóst er að sjóðurinn verður fyrir
verulegum skakkaföllum vegna falls þriggja stærstu banka landsins. Staða
sjóðsins er þó enn sem áður sterk. Einföld ríkisábyrgð er á skuldbindingum
Íbúðalánasjóðs og sjóðurinn er, þrátt fyrir þessi áföll, vel í stakk búinn til
að sinna því hlutverki sem honum er ætlað samkvæmt lögum.

13.11.2008 
Hermann Oskarsson, hagstofustjóri Færeyja og Gunvör Balle, aðalræðismaður Færeyja á Íslandi, verða framsögumenn á morgunfundi sem haldinn verður í Hvammi á Grand Hótel mánudaginn 17. nóvember kl. 8:00 til 9:30 undir yfirskriftinni „Hvað getum við lært af Færeyingum?“
Að loknum stuttum framsöguerindum verða pallborðsumræður með þátttöku framsögumanna og Hjálmars Árnasonar, framkvæmdastjóra Samgöngu- og öryggisskóla Keilis og fyrrverandi alþingismanns. Fundarstjóri verður Bogi Ágústsson, fréttamaður. Fundurinn er haldinn á vegum Byrs sparisjóðs, Íbúðalánasjóðs, Landssamtaka lífeyrissjóða, Sendistova Föroya í Reykjavík og KOM almannatengsla.

11.11.2008 
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um auknar heimildir Íbúðalánasjóðs til að mæta greiðsluvanda lánþega. Heimilt verður að lengja lánstíma vegna greiðsluerfiðleika í allt að 30 ár í stað 15. Þá verður sjóðnum heimilt að leigja fólki húsnæði sem það missir.
17.10.2008 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæpum 8,0 milljörðum króna í september, sem er ríflega 40% aukning frá fyrra mánuði. Þar af voru tæplega 5,6 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 2,4 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins námu rúmum 22,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi og hafa heildarútlán í einum fjórðungi ekki verið meiri síðan á öðrum ársfjórðungi 2004. Þar með nema heildarútlán sjóðsins rúmum 47 milljörðum það sem af er árinu 2008. Meðalútlán almennra lána námu um 11,3 milljónum króna í september og jukust lítillega frá fyrra mánuði eða um 3,5%. Mánaðarskýrslan í heild.
15.10.2008 
Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur með reglugerðarbreytingu rýmkað heimildir Íbúðalánasjóðs til að koma til móts við lántakendur sem lenda í greiðsluvanda. Íbúðalánasjóður hefur jafnframt mildað innheimtuaðgerðir stofnunarinnar með tilliti til ástands efnahagsmála. Frestur frá gjalddaga til sendingar greiðsluáskorunar verður framvegis fjórir til fjórir og hálfur mánuður frá elsta ógreidda gjalddaga í stað tveggja til tveggja og hálfs mánaðar áður. Heimilt er að afturkalla nauðungarsölu gegn greiðslu þriðjungs vanskila í stað helmings vanskila áður og rýmingarferli uppboðsíbúða hefur verið lengt úr einum í þrjá mánuði.
10.10.2008 
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett á fót nýtt samræmt þjónustu- og upplýsinganet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði sem felur í sér nýtt vefsvæði, grænt símanúmer, fyrirspurnalínu og netspjall. Á hinu nýja þjónustuneti er að finna tengingar og helstu upplýsingar um stöðu mála og margvíslega upplýsingaþjónustu og ráðgjöf sem í boði er á vettvangi ráðuneyta og stofnana vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Jafnframt er þar að finna upplýsingar um aðra aðila sem veita margvíslega ráðgjöf og þjónustu sem nýst getur almenningi.
9.10.2008 
Matsfyrirtækið Moody’s greindi frá því í gær, 8. október 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í A1 úr Aa1. Lánshæfismatið er áfram á athugunarlista til mögulegrar lækkunar. Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.
7.10.2008 
Alþingi hefur samþykkt lög sem veita Íbúðalánasjóði heimild til að yfirtaka íbúðaveðlán  fjármálafyrirtækja. Heimildin á við um erlend og innlend lán og gildir án tillits til upphæðar eða veðsetningar húsnæðis. Verði lánin yfirtekin munu reglur Íbúðalánasjóðs um greiðsluerfiðleikamál gilda um þessi lán sem önnur lán sjóðsins.
7.10.2008 
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í gær, 6. október 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum í 'BBB' úr 'A+'. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í 'BBB' úr 'A-'. Þá voru langtímaeinkunnir teknar af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var lækkuð í 'A-3' úr 'A-2' og einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum 'A-1' var lækkuð í 'A-3'.
Horfur á lánshæfismat Íbúðalánasjóðs eru neikvæðar. Tilkynning Standard & Poor´s.
1.10.2008 
Moody’s Investors Service hefur tekið lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs (ÍLS), Aa1, til skoðunar vegna hugsanlegrar lækkunar. Þessi aðgerð er til komin vegna ákvörðunar Moody’s um að taka íslensk ríkisskuldabréf og bankainnstæður í erlendri mynt til athugunar vegna mögulegrar lækkunar.

Sjá tilkynningu frá Moody´s 

30.9.2008 
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í gær, 29. september 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum í 'A' úr 'A+'. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í 'A-' úr 'A'. Þá voru langtímaeinkunnir settar á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var lækkuð í 'A-2' úr 'A-1' og einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum 'A-1' var staðfest. Tilkynning Standard & Poor´s.
17.9.2008 
Í viðhorfskönnun sem Capacent Gallup gerði meðal fasteignakaupenda nýlega kom í ljós að 91,2% eru jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði. Aðeins 2,2% eru neikvæðir. Jákvæðni í garð sjóðsins hefur aukist jafnt og þétt sl. ár. 92,1 prósent telja að hann eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd. 56,7% telja að ríkið eigi að styrkja eignalítið og tekjulágt fólk við húsnæðiskaup.
15.9.2008 
Undirritaður hefur verið þjónustusamningur Íbúðalánasjóðs og Alþjóðahúss. Markmið samningsins er að efla þjónustu við nýja íbúa í íslensku samfélagi. M.a. er stefnt að því að allar helstu upplýsingar sem viðskiptavinum sjóðsins standa til boða á íslensku verði einnig aðgengilegar á móðurmáli stærstu hópa innflytjenda. 
12.9.2008 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæpum 5,7 milljörðum króna í ágúst sem er um 6% aukning frá sama mánuði í fyrra. Þar af voru rúmlega 4,3 milljarðar vegna almennra lána og ríflega 1,3 milljarður vegna leiguíbúðalána. Þar með nema heildarútlán sjóðsins rúmum 39 milljörðum það sem af er árinu 2008. Meðalútlán almennra lána námu um 10,9 milljónum króna í ágúst og jukust þau um rúm 15% frá sama tíma í fyrra. Sjá mánaðarskýrslu.
9.9.2008 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9%, en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.
5.9.2008 
Styrkir Íbúðalánasjóðs árið 2008 voru veittir við hátíðlega athöfn í Borgartúni 21 fimmtudaginn 4. september. Að þessu sinni voru veittir 20 styrkir vegna tæninýjunga og umbóta í byggingariðnaði, samtals 18,7 millj. kr. Þá voru veittir 7 styrkir til háskólanema vegna rannsókna á sviði húsnæðismála, alls 2,5 millj. kr., en slíkir styrkir voru nú veittir í síðasta sinn.
25.8.2008 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9% og 5,4% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis.
22.8.2008 
Íbúðalánasjóður heimilar nú þeim sem eiga tvær húseignir og hafa ekki getað selt aðra þeirra að fresta afborgunum af lánum. Heimilt er að fresta greiðslum af lánum sjóðsins á annarri eða báðum eignum. Sama rétt eiga þeir sem eru að byggja og eru með lán hjá Íbúðalánasjóði á nýbyggingunni og/eða þeirri eign sem ekki hefur tekist að selja. Hvíli lán frá Íbúðalánasjóði á annarri eigninni eingöngu er hægt að sækja um greiðslufrest á því láni. Sjá nánar um skilyrði og fleira.
22.8.2008 
Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2008 var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins í gær 21. ágúst 2008. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningur 2008.
12.8.2008 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í júlí námu ríflega 8,7 milljörðum króna, en þar af voru tæplega 6,9 milljarðar vegna almennra útlána og tæpir 1,9 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um rúmlega 75% frá fyrra mánuði og um tæp 38% frá sama tíma í fyrra. Útlán sjóðsins hafa ekki verið meiri í einum mánuði síðan í júní 2004. Heildarútlán sjóðsins það sem af er árinu 2008 nema um 33 milljörðum króna sem er 13% samdráttur frá sama tímabili í fyrra. Lesa mánaðarskýrslu.
11.8.2008 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins breytist sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 11. ágúst 2008.
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 8. ágúst 2008 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,43%.
1.8.2008 
Íbúðalánasjóður hefur endurskoðað áætlanir um útlán, útgáfu skuldabréfa og greiðslur til hækkunar í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar 19. júní sl. um sérstakar aðgerðir í húsnæðismálum. Helstu ástæður hækkunar eru afnám tengingar við brunabótamat, hækkun hámarksláns í 20 milljónir kr. og auknar heimildir til leiguíbúðalána um 5 milljarða. Sjá áætlun júlí 2008.
31.7.2008 
1.125 manns, sem fá vaxtabætur eða hafa fengið fyrirframgreiddar vaxtabætur, eru í vanskilum hjá Íbúðalánasjóði og verður vaxtabótunum skuldajafnað á móti vanskilum samtals að upphæð 94,7 milljónir króna. Vaxtabætur eru látnar ganga upp í vanskil fram til 15. júní. Kröfuskrá var send ríkisskattstjóra í byrjun júlí vegna tölvuvinnslu og þess vegna getur verið mismunur á stöðu og skuldajöfnun í lok júlí. Þeir sem gerðu skil í júlí fá senda ávísun fyrir þeirri fjárhæð sem hefur verið dregin frá vaxtabótunum. Ávísanir fóru í póst 31. júlí.
24.7.2008 
Íbúðalánasjóður hefur auglýst eftir umsóknum fjármálafyrirtækja um lán til tímabundinnar endurfjármögnunar á íbúðalánum sem veitt hafa verið gegn veði í íbúðarhúsnæði. Hvert fyrirtæki getur aðeins sent inn eina umsókn. Heimilt er að lána að hámarki 30 milljarða króna en hver umsækjandi á rétt á 1,5 milljörðum króna að lágmarki. Íbúðalánasjóður afhendir íbúðabréf til þriggja mánaða gegn skuldabréfi með tryggingu í undirliggjandi fasteignaveðbréfum. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur sett reglur um þennan nýja lánaflokk sem ráðherra hefur staðfest. Hér má lesa auglýsingu um lánin.
18.7.2008 
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð um nýjan lánaflokk sem heimilar Íbúðalánasjóði lánveitingar til fjármálafyrirtækja í þeim tilgangi að endurfjármagna tímabundið íbúðalán sem þessi fyrirtæki hafa veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði. Allt að 30 milljörðum verður varið í þessum lánaflokki í formi íbúðabréfa, sem eingöngu verða notuð í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands.
11.7.2008 
Samtals námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæplega 5,0 milljörðum króna í júní, en þar af voru rúmlega 4,1 milljarður vegna almennra útlána og tæplega 0,9 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 4% frá fyrra mánuði. Alls lánaði Íbúðalánasjóður um 14,0 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi og um 25,0 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins 2008. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir júní.
30.6.2008 
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að veita Íbúðalánasjóði 5 milljarða króna lánsfjárheimild vegna leiguíbúða. Þetta er gert á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar 19. júní sl. um aðgerðir á fasteigna- og fjármálamarkaði. Heimildin nær til leiguíbúða á almennum markaði vegna söluíbúða sem ekki seljast.
27.6.2008 
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi frá sér í dag álitsgerð í tengslum við formlega rannsókn á því hvort fyrirkomulag Íbúðalánasjóðs væri í samræmi við ríkisstyrkjareglur EES-samningsins. Í áliti ESA kemur fram að bráðabirgðaniðurstaða stofnunarinnar sé að núgildandi ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð sé ekki í samræmi við ríkisstyrkjaákvæði EES-samningsins. Lykilatriði sé að ríkisaðstoð vegna félagslegra lána til íbúðarkaupa sé nægjanlega vel skilgreind og afmörkuð og á það skorti í núgildandi löggjöf.
26.6.2008 
Tæp 94% landsmanna vilja óbreyttan Íbúðalánasjóð, samkvæmt könnun fréttastofu Stöðvar 2. Tæp 2 prósent vilja leggja Íbúðalánasjóð niður. Könnunin var gerð áður en ríkisstjórnin kynnti hækkun hámarkslána og fleiri aðgerðir í húsnæðismálum. Könnunin fór fram dagana 12. til 18. júní og var úrtakið 1.140 manns.
25.6.2008 
Afgreiðslu Íbúðalánasjóðs í Reykjavík var lokað í hádeginu í dag svo starfsfólk gæti notið góða veðursins. Þjónustuver á Sauðárkróki var opið að venju.
25.6.2008 
Afgreiðsla Íbúðalánasjóðs í Reykjavík verður lokuð frá kl. 11:30 – 13 í dag vegna veðurs. Þjónustuverið er opið og hægt að hafa samband í síma 569 6900 eða á Netinu í allan dag.
24.6.2008 
Tæp 94% landsmanna vilja óbreyttan Íbúðalánasjóð, samkvæmt könnun fréttastofu Stöðvar 2. Tæp 2 prósent vilja leggja Íbúðalánasjóð niður. Könnunin var gerð áður en ríkisstjórnin kynnti hækkun hámarkslána og fleiri aðgerðir í húsnæðismálum. Könnunin fór fram dagana 12. til 16. júní og var úrtakið 1.140 manns.
23.6.2008 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins lækki um 0,15 prósentustig. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 5,05% (voru 5,20%) en vextir verða 5,55% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis (voru 5,70%). Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 23. júní 2008. Tilkynning til kauphallar um niðurstöðu útboðs.
20.6.2008 

Íbúðalánasjóður efnir til útboðs á íbúðabréfum í fjórum flokkum í dag og stefnir að því að taka tilboðum í allt að 8 milljarða króna að nafnverði. Þetta er annað útboð sjóðsins á þessu ári. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi við sex fjármálastofnanir hafa þær einar rétt á að gera tilboð. Tilboð þurfa að berast fyrir kl. 16:00 í dag, föstudaginn 20. júní. Uppgjör sölu er eftir viku.

19.6.2008 
Ríkisstjórnin hefur samþykkt sérstakar aðgerðir í húsnæðismálum og verða talsverðar breytingar á lánum Íbúðalánasjóðs fyrir vikið. Hámarkslán verður hækkað í 20 milljónir króna og ekki verður lengur miðað við brunabótamat heldur lánað allt að 80% af kaupverði eigna. Þá verða auknar heimildir til leiguíbúðalána og stofnaðir nýir lánaflokkar hjá sjóðnum til að fjármagna íbúðalán fjármálastofnana. Breytingar á almennum lánum Íbúðalánasjóðs ganga í gildi þegar félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð þar um. Nýjar reglur kalla á umfangsmiklar breytingar á vinnslukerfum og vef Íbúðalánasjóðs og eru viðskiptavinir vinsamlegast beðnir að sýna biðlund meðan unnið er að þeim.
19.6.2008 
Íbúðalánasjóður hefur gert samning við sex fjármálastofnanir um að vera aðalmiðlara með íbúðabréf og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að
styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Samið var við Glitni banka, Kaupþing banka, Landsbanka Íslands, MP Fjárfestingarbanka, Saga Capital Fjárfestingarbanka og Straum–Burðarás Fjárfestingabanka. Samningar voru undirritaðir 18. júní og ganga í gildi 1. júlí. Sýnishorn af samningi.
16.6.2008 
Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að bjóða aðilum OMX Nordic Exchange á Íslandi að gerast aðilar að samningum í tengslum við aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með íbúðabréf. Þeir sem tilbúnir eru að takast á herðar þær kröfur sem samningurinn gerir og hyggjast gerast viðskiptavakar íbúðabréfa þurfa að undirrita samning í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði milli kl. 12:00 og 13:00, miðvikudaginn 18. júní 2008 í Íbúðalánasjóði.
12.6.2008 
Bankar og sparisjóðir hafa sem kunnugt er dregið mjög úr útlánum til íbúðakaupa. Hinsvegar hefur hlutdeild Íbúðalánasjóðs aukist og hefur sjóðurinn lánað 80% af heildarútlánum það sem af er árinu. Þetta kemur fram í nýjum Vegvísi Landsbankans.
11.6.2008 
Vegna fréttar í dagblaðinu 24 stundum 11. júní 2008 vill Íbúðalánasjóður taka fram að engin breyting hefur orðið á lánveitingum sjóðsins, hvorki til nýbygginga né notaðs húsnæðis. Einstaklingar hafa sama rétt og aðgengi og jafnan áður að lánveitingum sjóðsins.
Talsverð ásókn er nú í lán til leiguíbúða og í fokheldislán til verktaka og hefur engum slíkum lánveitingum verið hafnað. Þau mál eru hinsvegar til athugunar hjá stjórn sjóðsins hverju sinni, m.a. nú í ljósi frétta um að mikið sé um óselt húsnæði á ýmsum byggingarstigum.
10.6.2008 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 4,8 milljörðum króna í maí. Þar af var tæplega 1,1 milljarður króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán námu tæplega 3,8 milljörðum króna. Meðallán almennra útlána nam tæplega 9,8 milljónum króna. Alls jukust heildarútlán Íbúðalánasjóðs því um 15% frá fyrra mánuði, en meðallán almennra útlána sjóðsins lækkuðu um 6% á sama tímabili. Sjá mánaðarskýrslu.
10.6.2008 
Að tillögu stjórnar Íbúðalánasjóðs hefur Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, sett reglur til að aðstoða þolendur náttúruhamfara með frestun eða skuldbreytingu á lánum sjóðsins.
Reglurnar eru settar í kjölfar Suðurlandsskjálftans til að styðja við bakið á þeim sem urðu fyrir tjóni af völdum hans og koma í veg fyrir greiðsluerfiðleika þeirra. Skilyrði fyrir heimildinni er að tjón á íbúð viðkomandi af völdum náttúruhamfara hafi verið tilkynnt til vátryggjanda eða Viðlagatryggingar Íslands.
2.6.2008 
Sparisjóðirnir hafa lækkað veðhlutfall sitt á svonefndum hattalánum. Hattalánin eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og sparisjóðanna. Hlutfallið lækkar úr 80% í 75%.
28.5.2008 
Íbúðalánasjóður veitti nú í vor eins og undanfarin tvö ár meistaranemum í byggingariðnaði styrki fyrir góðan námsárangur.
Styrkirnir, sem veittir eru í tilefni af 50 ára afmæli húnsæðislána hér á landi, fóru til nema sem útskrifuðust sem meistarar í byggingariðngreinum. Styrkjunum var úthlutað samkvæmt ábendingum frá skólameisturum viðkomandi skóla. Heildarfjárhæð styrkjanna var 500.000 kr. og skiptist milli nemendanna.
21.5.2008 
Matsfyrirtækið Moody’s greindi frá því 20. maí að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í Aa1 úr Aaa. Horfur eru stöðugar. Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs. Sjá nánar í viðhengi.
15.5.2008 
Tekin hefur verið í notkun ný útgáfa af greiðslumats-og umsóknarkerfinu, ibudalan.is. Nýja kerfið er mun einfaldara og aðgengilegra í notkun en það eldra, auk þess sem byggingaraðilar geta nú sótt um lán rafrænt.
8.5.2008 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 4,2 milljörðum króna í apríl. Þar af voru rúmlega 0,8 milljarðar króna vegna leiguíbúðalána á meðan almenn útlán námu tæplega 3,4 milljörðum króna, en meðallán almennra útlána nam ríflega 10,4 milljónum króna. Alls jukust heildarútlán Íbúðalánasjóðs því um 16% frá fyrra mánuði, en meðallán almennra útlána sjóðsins hækkuðu um 8% á sama tímabili. Sjá mánaðarskýrslu.
25.4.2008 
Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's hefur gefið út uppfærða lánshæfisskýrslu fyrir Íbúðalánasjóðs.
Meðfylgjandi er skýrsla Standard & Poor's.
21.4.2008 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að breyta útlánavöxtum. Vextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 5,20% en 5,70% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 21. apríl 2008.
17.4.2008 
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í dag, 17. apríl 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum í 'A+' úr 'AA-' með neikvæðum horfum. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í 'A' úr 'A+' með neikvæðum horfum. Þá var lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum lækkuð í 'A-1' úr 'A-1+' og einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt 'A-1' var staðfest.
Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands. Sjá nánari umfjöllun.
8.4.2008 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 3,6 milljörðum króna í mars. Þar af voru tæplega 0,9 milljarðar króna vegna leiguíbúðalána á meðan almenn útlán námu rúmlega 2,7 milljörðum króna, en meðallán almennra útlána nam tæplega 9,7 milljónum króna. Alls jukust heildarútlán Íbúðalánasjóðs því um 27% frá fyrra mánuði, en meðallán almennra útlána sjóðsins hafa hækkað um 12% á sama tímabili. Sjá mánaðarskýrslu.
4.4.2008 
Endurskoðuð áætluð útgáfa íbúðarbréfa Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2008 til fjármögnunar nýrra útlána er 35-41 milljarðar króna sem er lækkun um 14-16 milljarða frá fyrri áætlun. Íbúðalánasjóður áætlar að ný útlán sjóðsins verði á bilinu 49-55 milljarðar króna á árinu 2008 sem er lækkun um 8-10 milljarða frá fyrri áætlun. Sjá nánar.
2.4.2008 
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í gær, 1. apríl 2008, að það hefði til athugunar lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum AA- og A+ í erlendri mynt með neikvæðum vísbendingum. Jafnframt voru lánshæfiseinkunnir fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt (A-1) og íslenskum krónum (A-1+) staðfestar.
Breyting á horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar athugunar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs Íslands.
Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.
31.3.2008 
Sparisjóðir munu hækka vexti um 1 % á svonefndum hattalánum frá og með 1.apríl. Hattalánin eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna. Í boði eru tvenns konar lánamöguleikar, með eða án uppgreiðsluþóknunar. Vextir af lánum með uppgreiðsluþóknun hækka úr 7,10% í 8,10% og úr 7,40% í 8,40% á lánum án uppgreiðsluþóknunar.
25.3.2008 
Ákveðið hefur verið að hækka vexti á svonefndum hattalánum. Hattalánin eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna og munu vextir á þeim hækka um 0,25%.  Í boði eru tvenns konar lánamöguleikar, með eða án uppgreiðsluþóknun. Vextir af lánum með uppgreiðsluþóknun hækka úr 6,85% í 7,10% og úr 7,15% í 7,40% á lánum án uppgreiðsluþóknunar.
7.3.2008 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmum 2,8 milljörðum króna í febrúar. Þar af voru ríflega 452 milljónir króna vegna leiguíbúðalána á meðan almenn útlán námu tæplega 2,4 milljörðum króna, en meðallán almennra útlána nam rúmlega 8,6 milljónum króna.
5.3.2008 
Matsfyrirtækið Moody’s greindi frá því í dag, 5. mars 2008, að það hefði breytt horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs, sem er Aaa, í neikvæðar úr stöðugum. Breyting á horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs Íslands í neikvæðar úr stöðugum. Sjá tilkynningu frá Moody´s.
22.2.2008 
Samkvæmt ákvörðun stjórnar Íbúðalánasjóðs 21. febrúar 2008 er gerð krafa um bankaábyrgð viðskiptabanka við greiðslumat byggingaraðila vegna lána til nýbygginga.
Skal ábyrgðin ná til greiðslu lánsins og gilda þar til lánið verður greitt upp eða Íbúðalánasjóður hefur samþykkt nýjan skuldara að láninu við eigendaskipti fasteignarinnar. Falli ábyrgð niður er heimilt að gjaldfella lánið.
13.2.2008 
Breytingar á skipulagi og skipuriti Íbúðalánasjóðs voru nýlega samþykktar af stjórn sjóðsins. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Stofnað var nýtt svið, lögfræðisvið, sem sinnir innheimtumálum og lögfræðilegri ráðgjöf fyrir sjóðinn.
Þróunarsvið er lagt niður og verkefni þess færð yfir á rekstrarsvið, lögfræðisvið og upplýsinga- og tæknisvið. Nafni upplýsingatæknisviðs er breytt í upplýsinga- og tæknisvið í samræmi við breytt og aukin verkefni þess.
7.2.2008 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í janúar námu rúmlega 4,5 milljörðum króna, sem er ríflega 6% aukning frá janúar 2007. Þar af voru tæplega 3,5 milljarðar króna vegna almennra útlána en leiguíbúðalán námu rúmum einum milljarði króna. Meðallán almennra útlána var um 9,7 milljónir króna og hafa þau hækkað um tæp 12% frá fyrra mánuði.  Ef miðað er við sama tíma í fyrra þá hafa meðallán almennra útlána hækkað um rúmlega 2%. Sjá mánaðarskýrslu.
1.2.2008 
Ársreikningur Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2007 er nú í fyrsta sinn gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Eigið fé sjóðsins 1. janúar 2007 hækkar um 1.286 millj. kr. vegna innleiðingar staðlanna. Frekari upplýsingar um áhrif innleiðingarinnar eru í skýringu 16 í ársreikningnum.
Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 2.528 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í árslok var 20.189 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 7,0%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%.
24.1.2008 
Viðhorfskannanir sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð í desember s.l. gefa til kynnna að stuðningur fasteignakaupenda við íbúðalánastarfsemi banka og sparisjóða hefur hrapað milli kannanna og einnig minnkað meðal þeirra sem svöruðu almennu könnuninni. Í desember 2006 vildu 60,2% fasteignakaupenda að bankarnir kæmu að íbúðalánum einir eða ásamt Íbúðalánasjóði en í desember 2007 er þetta hlutfall komið niður í 45,5%. Hins vegar vildu 49,8% almennings að bankarnir kæmu að íbúðalánum fyrir ári síðan, en það hlutfall lækkar í 46,4% í desember. Afstaða beggja hópanna mælist nú því sambærileg. Kannanirnar er hægt að skoða á vef Íbúðalánsjóðs.
24.1.2008 
Í viðhorfskönnunum sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð í desember s.l. segjast 42,6% þeirra sem telja sig munu festa kaup á íbúðarhúsnæði á næstu misserum gera ráð fyrir að taka íbúðalán hjá Íbúðalánasjóði. Athygli vekur hins vegar að sama hlutfall telur sig muni taka íbúðalán í erlendri mynt. Þá kemur fram að 38,7% þeirra sem endurfjármögnuðu íbúðalán sín á árinu 2007 tóku slík lán í erlendri mynt samanborið við 9,7% í könnuninni í desember 2006.
Niðurstöður skoðanakannanna er að finna á vef Íbúðalánasjóðs www.ils.is ásamt greinargerðum ráðgjafafyrirtækisins Spesíu um niðurstöður þeirra.
23.1.2008 
Í báðum viðhorfskönnunum sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð í desember s.l. kemur fram mjög skýr vilji fólks fyrir því að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd og hefur hlutfallið aldrei áður verið svo hátt. Meðal fasteignakaupenda vill 87,4% óbreytta starfsemi en það hlutfall var 82,8 % í desember 2006. Í almennu könnuninni var þetta hlutfall 85,5% í desember 2007 en 74,2% í desember 2006. Íbúðalánasjóður á að sjá um húsnæðislán – einn eða ásamt bönkunum – að mati 79,5% fasteignakaupenda, en 75,4 % þeirra sem svöruðu almennu könnuninni. Sjá kannanir.
23.1.2008 
Almenningur er afar jákvæður í garð Íbúðalánasjóðs og telur að Íbúðalánasjóður eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd. Þetta kemur fram í nýjum viðhorfskönnunum Capacent Gallup annars vegar á meðal almennings og hins vegar meðal þeirra er festu kaup á íbúðarhúsnæði tímabilið júlí til nóvember í fyrra. Um og yfir 80% Íslendinga er jákvæður gagnvart Íbúðalánasjóði. Matsstuðull sem mælir jákvæðni var 4,1 meðal fasteignakaupenda, en 4,0 meðal almennings. Báðar niðurstöðurnar eru hærri en hæsta gildi sem mældist í sértækum ímyndarkönnunum Capacent á árinu 2007, en þar var hæsta gildi 3,9 og meðaltalsgildið 3,8.
8.1.2008 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í desember námu tæplega 5,2 milljörðum króna. Þar af voru tæplega 1,8 milljarðar vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru tæplega 3,4 milljarðar króna. Meðallán almennra útlána var um 8,6 milljónir króna. Alls lánaði sjóðurinn um 18,6 milljarða á fjórða ársfjórðungi ársins 2007 og hafa útlán sjóðsins á lokafjórðungi árs aldrei verið hærri í sögu hans. Heildarútlán ársins námu því um 67,8 milljörðum króna, þar af voru almenn útlán um 54,8 milljarðar og útlán vegna leiguíbúðalána um 13 milljarðar. Sjá mánaðarskýrsluna í heild sinni.
13.12.2007 
Í kjölfar útboðs íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs hafa vextir á lánum sjóðsins verið hækkaðir um 0.20% og eru nú 5.75 % á almennum lánum en 5,50% á lánum með ákvæði um sérstaka uppgreiðsluþóknun.
12.12.2007 
Frá og með 1.janúar 2008 fellir Íbúðalánasjóður niður sinn hluta seðilgjalds viðskiptavina sinna! Eftir stendur að viðskiptavinir sjóðsins þurfa að greiða 75 kr. greiðslugjald sem rennur til banka og sparisjóða sem taka við afborgunum af lánum Íbúðalánasjóðs. Seðilgjaldið var áður alls 195 kr. Starfsfólk Íbúðalánasjóðs vill einnig minna viðskiptavini okkar á að nýta sér þann umhverfisvæna möguleika að vera með pappírslaus viðskipti. Sótt er um rafrænan greiðsluseðil á heimasíðu Íbúðalánsjóðs www.ils.is.
5.12.2007 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í nóvember námu rúmlega 6,8 milljörðum króna. Þar af voru tæplega 2,2 milljarðar vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru um 4,6 milljarðar króna. Meðallán almennra útlána var um 9,2 milljónir króna. Það sem af er ári nema útlán um 62,7 milljörðum króna, þar af eru almenn útlán um 51,4 milljarðar og útlán vegna leiguíbúðalána um 11,3 milljarðar.
Mánaðarskýrlsluna má lesa hér.
20.11.2007 
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í dag, 20. nóvember 2007, að það hefði breytt horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs í neikvæðar úr stöðugum. Jafnframt voru staðfestar einkunnirnar A+ / A-1 fyrir skuldbindingar í erlendri mynt og AA- / A-1+ fyrir skuldbindingar í innlendri mynt.
Breyting á horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs Íslands í neikvæðar úr stöðugum.
Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.
16.11.2007 
Í kjölfar útboðs íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs hafa vextir á lánum sjóðsins verið hækkaðir um 0.45% og eru nú 5.55 % á almennum lánum  en 5,30% á lánum með ákvæði um sérstaka uppgreiðsluþóknun.
12.11.2007 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í október námu rúmlega 6,6 milljörðum króna. Þar af var um 1,3 milljarður vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru um 5,3 milljarðar króna. Meðallán almennra útlána var rúmlega 9,6 milljónir króna. Heildarútlán á árinu nema samtals 55,9 milljörðum króna samanborið við 39,9 milljarða á fyrstu tíu mánuðum ársins 2006. Sjá mánaðarskýrslu.
9.11.2007 
Ákveðið hefur verið að hækka vexti á svonefndum hattalánum. Hattalánin eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna og munu vextir á þeim hækka um 0,40% frá og með10.nóv. Í boði eru tvenns konar lánamöguleikar, með eða án uppgreiðsluþóknun. Vextir af lánum með uppgreiðsluþóknun hækka úr 6,45% í 6,85% og úr 6,75% í 7,15% á lánum án uppgreiðsluþóknunar.
7.11.2007 
Vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna, sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna, hafa hækkað um 0,20%. Vextir af slíkum lánum með uppgreiðsluþóknun hækkuðu í 6,45% úr 6,25% og lán án uppgreiðsluþóknunar hækkuðu í 6,75% úr 6,55%. Hækkunin hefur þegar tekið gildi.
5.11.2007 
Sólveig Jónasdóttir og Amal Tamimi frá Alþjóðahúsinu heimsóttu starfsfólk Íbúðalánasjóðs í Borgartúni í dag og munu heimsækja starfsfólk sjóðsins á Sauðárkróki á morgun. 
Þær buðu upp á námskeið í þjónustu í fjölmenningarlegu umhverfi þar sem meðal annars var fjallað um málefni innflytjenda í tengslum við þjónustuumhverfi stofnana og fyrirtækja.
Markmiðið með námskeiðinu er að bæta þjónustu við viðskiptavina af erlendum uppruna, auðvelda starfsfólki vinnu sína og auka vellíðan starfsfólks og ánægju viðskiptavina.
1.11.2007 
Ívar Ragnarsson hefur tekið við starfi sviðsstjóra fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs frá og með deginum í dag, 1. nóvember 2007. Ívar mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn sjóðsins. Jóhann G. Jóhannsson, sem gegndi starfi sviðsstjóra fjármálasviðs lét af því starfi 11. september s.l. Ívar Ragnarsson er með meistaragráðu í fjármálum og starfaði áður á fjárstýringarsviði Glitnis hf. frá maí á þessu ári. Þar áður var hann sérfræðingur á fjármálasviði Íbúðalánasjóðs frá febrúar 2005 til maí 2007.
22.10.2007 
Starfsdagur Íbúðalánasjóðs fór fram á laugardaginn síðasta og var að þessu sinni haldinn á Akureyri. Er þetta orðinn árlegur viðburður í starfsemi sjóðsins og er starfsdagurinn að jafnaði haldinn á haustin. Fyrri hluti dagsins fór í að ræða innra starf sjóðsins og kynnti Framkvæmdastjórn Íbúðalánasjóðs það sem áunnist hefði frá síðasta starfsdegi 2006. Síðari hluta starfsdagsins var stjórnað af ráðgjafafyrirtækinu Capacent sem bauð upp á námskeið um sterka liðsheild.
12.10.2007 
Guðrún Agnarsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands heimsótti starfsfólk Íbúðalánasjóðs í morgun í tilefni að hinu árlega árvekniátaki um brjóstakrabbamein. Guðrún fræddi starfsfólk um algengustu tegundir krabbameins kvenna og karla, batahorfur og lífslíkur fólks með hin ýmsu krabbamein. Íbúðalánasjóður keypti bleikar slaufur fyrir starfsfólk sitt, til styrktar átakinu sem meðal annars skv. Guðrúnu skal nota til fjármögnunar á nýjum tækjabúnaði.
4.10.2007 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í september námu tæplega 5,6 milljörðum króna. Þar af var um 1,4 milljarður vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru tæplega 4,2 milljarðar króna. Meðallán almennra útlána var tæplega 8,8 milljónir króna sem er talsverð lækkun frá fyrri mánuðum ársins þar sem meðallánið hefur verið á bilinu 9,1 - 9,6 milljónir. 

 

4.10.2007 
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s hefur staðfest lánshæfismat Íbúðalánasjóðs, Aaa og metur horfur sjóðsins stöðugar.

Sjá má tilkynningu Moody´s hér.

20.9.2007 
Í dag, fimmtudaginn 20. september útnefnir Íbúðalánasjóður 21 verkefni til styrkja á sviði rannsókna í húsnæðismálum og tækninýjunga og umbóta í byggingariðnaði. Íbúðalánasjóður veitir styrki til námsmanna til rannsókna á sviði húsnæðismála og til tækninýjunga og annarra umbóta í byggingariðnaði.
17.9.2007 
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s hefur gefið út nýja yfirlitsskýrslu um sjóðinn, "company profile?. Í yfirlitsskýrslunni er farið yfir helstu atriði í sögu, uppbyggingu og stöðu Íbúðalánasjóðs. Sterk staða Íbúðalánasjóðs endurspeglast í yfirlitsskýrslu Moody´s. Skýrsluna má finna hér.

13.9.2007 
Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða áfram 4,85% á lán með uppgreiðsluálagi, en 5,1% á lán án uppgreiðsluálags. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 13. september, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa er 4,42%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70%.
10.9.2007 
Þrír af hverjum fjórum fasteignakaupendum eru jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði og mikill meirihluti vill að sjóðurinn starfi í óbreyttri mynd.
Mikill meirihluti fasteignakaupenda vill að Íbúðalánasjóður starfi óbreyttur áfram. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð í júní og júlí. 82,5% eru þessarar skoðunar samkvæmt könnuninni, ámóta margir og í sambærilegri könnun í lok síðasta árs.
5.9.2007 
Metvelta var með íbúðabréf Íbúðalánasjóðs á markaði í ágústmánuði. Alls námu viðskipti með íbúðabréf í Kauphöll tæplega 193 milljörðum króna. Ávöxtunarkrafa lækkaði sem nemur 13-59 punktum eftir flokkum og tímalengdum. Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í ágúst námu tæplega 5,4 milljörðum króna. Þar af voru um 900 milljónir vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru tæplega 4,5 milljarðar króna. Nánar um þetta í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.
24.8.2007 
Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 2.816 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 20.477 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 7,5%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Sjá fréttatilkynningu.
14.8.2007 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins hækki. Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða 4,85%, á lánum með uppgreiðsluþóknun, en 5,10% á lánum án uppgreiðsluþóknunar. Breytingin tekur gildi frá og með 15. ágúst. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var í dag, 14. ágúst og vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa.
14.8.2007 
Tilboð að nafnvirði 17 milljarðar króna bárust í útboð í íbúðabréf sem Íbúðalánasjóður efndi til í gær og lauk kl. 9:15 í morgun.. Ákveðið var að taka tilboðum í íbúðabréf HFF44 að nafnvirði 5,1 milljarður króna. Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða er 4,47% án þóknunar og 4,48%, með þóknun.
13.8.2007 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í júlí námu rúmlega 6,3 milljörðum króna. Þar af voru almenn útlán 5,7 milljarðar en rúmlega 600 milljónir vegna leiguíbúða. Meðallán almennra útlána var tæplega 9,4 milljónir króna. Áætlun sjóðsins gerir ráð fyrir að útlán á þriðja ársfjórðungi verði á bilinu 13-15 milljarðar. Þetta kemur fram í Mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir júlí.
9.8.2007 
999 kaupsamningum um fasteignir var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í júlí, 104% fleiri en í júlí í fyrra. Heildarveltan nam tæplega 32 milljörðum króna og var 157% meiri en í sama mánuði í fyrra í krónum talið. Þetta kemur fram hjá Fasteignamati ríkisins. Kaupsamningar voru þó ríflega 3% færri í júlí en júní í sumar, en veltan 11% meiri.
3.8.2007 
72,4% fasteignakaupenda eru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði og aðeins 6,9% eru mjög eða frekar neikvæðir gagnvart sjóðnum. 20,7% eru hvorki né. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðlánasjóð í sumar. Marktækur munur er á afstöðu eftir fjölskyldutekjum. Um og yfir 80% þeirra sem eru með 250-550 þúsund krónur í fjölskyldutekjur á mánuði eru ánægðastir.
2.8.2007 
Mikill meirihluti fasteignakaupenda vill að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð í júní og júlí. 82,5% eru þessarar skoðunar samkvæmt könnuninni, ámóta margir og í sambærilegri könnun í lok síðasta árs. 9,2% telja að sjóðurinn eigi að vera heildsala og einungis 8,4% vilja að Íbúðalánasjóður hætti starfsemi og viðskiptabankarnir sjái alveg um íbúðalán.
2.8.2007 
Tæplega 870 manns, sem fá vaxtabætur eða hafa fengið fyrirframgreiddar vaxtabætur, eru í vanskilum hjá Íbúðalánasjóði og verður vaxtabótunum skuldajafnað á móti vanskilum sem nema 63,6 milljónum króna. Vaxtabætur eru látnar ganga upp í vanskil fram til 15. júní. Kröfuskrá var send ríkisskattstjóra í byrjun júlí vegna tölvuvinnslu og þess vegna getur verið mismunur á stöðu og skuldajöfnun í lok júlí. Þeir sem gerðu skil í júlí fá senda ávísun fyrir þeirri fjárhæð sem hefur verið dregin frá vaxtabótunum. Ávísanir hafa verið settar í póst og ættu að berast viðtakendum í vikunni.
1.8.2007 
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra heimsótti Íbúðalánasjóð 1. ágúst. Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs tók á móti henni og kynnti starfsemi sjóðsins með fulltingi sviðsstjóra. Að loknum kynningarfundi gekk Jóhanna um húsakynni sjóðsins í Borgartúni í Reykjavík og heilsaði uppá starfsfólk.
31.7.2007 
Vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna, sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna, hækkuðu um 0,10% frá og með 31. júlí. Vextir af slíkum lánum með uppgreiðsluþóknun hækkuðu í 6,25% úr 6,15% og lán án uppgreiðsluþóknunar hækkuðu í 6,55% úr 6,40%.
30.7.2007 
Íbúðalánasjóður hefur samið við sænska fyrirtækið Emric AB um kaup á nýju afgreiðslukerfi, KreDirekt. Nýtt afgreiðslukerfi fyrir sjóðinn var boðið út í desember og bárust þrjú tilboð. Um miðjan júlí var svo skrifað undir samning við Emric í Stokkhólmi. Áætlað er að fyrsti áfangi kerfisins verði tekinn í notkun í mars og lokaáfangi í september á næsta ári.
23.7.2007 
Vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna, sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna, hækkuðu um 0,10% frá og með 21. júlí. Vextir af slíkum lánum með uppgreiðsluþóknun hækkuðu úr 6,05% í 6,15% og lán án uppgreiðsluþóknunar hækkuðu úr 6,30% í 6,40%.
20.7.2007 
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,5% frá maí fram í júní, samkvæmt nýrri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem Fasteignamat ríkisins birti í gær. Hún var 337,4 stig í júní. Verð á sérbýli hækkaði um 3,7% en verð á fjölbýli lækkaði aftur á móti um 0,6%. Mun meiri sveiflur eru á verði sérbýlis en fjölbýlis.
19.7.2007 
Vanskil hjá Íbúðalánasjóði hafa verið í sögulegu lágmarki síðustu 2-3 ár og sjóðurinn á færri íbúðir, sem hann hefur þurft að leysa til sín, en oft áður. Þetta kom fram í máli Guðmundar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra sjóðsins í Íslandi í dag á Stöð tvö í gærkvöld. Um 1,5% lántakenda eru í vanskilum, þriggja mánaða eða eldri. Þetta hlutfall var 3,1% fyrir þremur árum.
16.7.2007 
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra ítrekar að Íbúðalánasjóður hafi mikilvægu hlutverki að gegn á íbúðalánamarkaðinum og segist vilja standa vörð um hlutverk hans í viðtali við Arnþór Helgason í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 15. júlí. Hún ætlar að endurreisa félagslegar áherslur í íbúðalánakerfinu með breytingum sem eiga að nýtast lágtekjufólki, þeim sem eru að kaupa íbúð í fyrsta sinn og landsbyggðarfólki.
16.7.2007 
Afgreiðsla Íbúðalánasjóðs í Reykjavík verður lokuð frá kl. 11:30 – 13 í dag vegna veðurs. Þjónustuverið er opið og hægt að hafa samband í síma 569 6900 eða á Netinu í allan dag.
10.7.2007 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í júní námu tæplega 7,2 milljörðum króna. Almenn útlán voru 6,0 milljarðar króna og var meðallán tæplega 9,6 milljónir króna. Tæplega 1,2 milljarðar heildarútlána voru vegna leiguíbúðalána. Þetta kemur fram í Mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir júní.
10.7.2007 
Meira en sex sinnum fleiri fengu 90% lán hjá Íbúðalánasjóði á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu á fjögurra mánaða tímabili þegar hámarkslánshlutfallið var 90%. Einungis voru 48 90% lán veitt á höfuðborgarsvæðinu sem eru 2% af öllum lánum.
3.7.2007 
Félagsmálaráðherra hefur undirritað reglugerð sem kveður á um að hámarkslánshlutfall Íbúðalánasjóðs skuli lækkað úr 90% í 80%. Hámarkslán helst óbreytt 18 milljónir króna. Breytingin gildir frá 4. júlí 2007.
27.6.2007 
Vextir Íbúðalánasjóðs hækka um 0,10% í kjölfar útboðs í gær. Vextir lána með uppgreiðsluálagi eru nú  4,80%, en vextir lána án uppgreiðsluálags eru 5,05%.
21.6.2007 
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur vakið athygli í fjölmiðlum og víðar með því að kenna Íbúðalánasjóði um aukna þenslu og ójafnvægi íslensks efnahagskerfis og með því að halda því fram að sjóðurinn beri ábyrgð á háum skammtímavöxtum hér á landi. Jafnframt er mælt með því að hámarkslán og lánshlutfall verði tafarlaust lækkað og að Íbúðalánasjóður verði lagður niður í núverandi mynd.
21.6.2007 
Vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna hækka frá og með deginum í dag. Um er að ræða valkvæða lánaflokka, með uppgreiðsluþóknun eða án. Í fyrri flokknum hækka vextir úr 5,95% í 6,05% og úr 6,20% í 6,30% í þeim síðari.
19.6.2007 
Fasteignaviðskipti hafa verið í hámarki undanfarnar vikur samkvæmt greiningardeild Landsbankans.
“Velta á fasteignamarkaði hefur aldrei verið meiri og gildir þá einu hvort litið er til 12 vikna eða hálfs árs meðaltals,” segir greiningardeildin.
14.6.2007 
Íbúðalánasjóður ber ekki ábyrgð á aukinni þenslu síðustu mánuði heldur má hana frekar rekja til útlána bankanna til íbúðakaupa og stóriðjuframkvæmda. Hámarkslán Íbúðalánasjóðs er 18 milljónir króna en ætti að vera þriðjungi hærra, eða 24 milljónir, ef það hefði fylgt verðþróun á fasteignum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram hjá Halli Magnússyni, sviðsstjóra Þróunarsviðs Íbúðalánasjóðs í Speglinum þriðjudaginn 12. júní. Hann sat þar fyrir svörum hjá Ragnhildi Thorlacius, fréttamanni Útvarpsins. Hér fyrir neðan má lesa þá umfjöllun.
12.6.2007 
Vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% í apríl samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins. Hækkun vísitölunnar síðastliðna tólf mánuði er samkvæmt því 5,3%. Verðbólga á tímabilinu er 5,3%. Raunverð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hefur því staðið í stað undanfarið ár.
Þetta kemur fram í Mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir maí 2007.
11.6.2007 
Íbúðalánasjóður hefur lánað samtals 24,8 milljarða króna á þessu ári. Útistandandi lán hjá sjóðnum voru 428 milljarðar króna í lok maí. Hlutdeild Íbúðalánasjóðs í heildarupphæð íbúðalána er um 44%, en hlutdeild í nýjum lánum á árinu er 56%, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Nánar í Mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir maí (pdf)
7.6.2007 
Breyting á hámarksláni og lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs hefur ekki valdið mikilli aukningu á verðbólgu. Í umræðum um efnahagsmál undanfarna daga hefur því verið haldið fram að starfsemi og ákvarðanir Íbúðalánasjóðs séu í andstöðu við stefnu stjórnvalda og “skaðvaldur á íbúðalánamarkaðinum”. Ákvörðun stjórnvalda um breytingu á hámarksláni og lánshlutfalli sjóðsins var stjórnvaldsaðgerð en ekki framkvæmd af sjóðnum einhliða.
7.6.2007 
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra segir að Íbúðalánasjóður verði ekki einkavæddur meðan hún stjórnar félagsmálaráðuneytinu. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi sem Guðni Ágústsson, Framsóknarflokki óskaði eftir um málefni sjóðsins. Félagsmálaráðherra sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin um að færa forræði sjóðsins frá félagsmálaráðuneytinu í fjármálaráðuneytið.
6.6.2007 
Vextir lána Íbúðalánasjóðs hafa verið hækkaðir um 0,05% í kjölfar útboðs á Íbúðabréfum í gær. Vextir lána með uppgreiðsluálagi eru nú 4,70%, en vextir lána án uppgreiðsluálags eru nú 4,95%.
4.6.2007 
Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Íbúðalánasjóður stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 5 milljarðar króna að nafnverði. Íbúðalánasjóður áskilur sér rétt til að hækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
9.5.2007 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæplega 5,3 milljörðum króna í apríl. Þar af voru ríflega 600 milljónir króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán námu tæpum 4,7 milljörðum króna. Meðallán almennra útlána nam tæpum 9,3 milljónum króna. Íbúðalánasjóður hefur því samtals lánað ríflega 18,8 milljarða króna á árinu 2007 sem er í efri mörkum útlánaáætlunar. Sjá skýrslu.
2.5.2007 
Íbúðalánasjóður auglýsir nú styrki sem ætlaðir eru nemendum á háskólastigi til rannsókna á sviði húsnæðismála. Jafnframt eru veittir styrkir til útskriftarnema sem stundað hafa meistaranám í byggingariðngreinum. Umsóknarfrestur er til 21. maí nk. Sjá nánar í meðfylgjandi auglýsingu.
27.4.2007 
Íbúðalánasjóður hefur lækkað vexti í 4,65% á lán með uppgreiðsluálagi en í 4,90% á lán án uppgreiðsluálags.
12.4.2007 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmlega 4,9 millljörðum króna í mars. Þar af voru tæplega 500 milljónir króna vegna leiguíbúðalána á meðan að almenn útlán námu rúmum 4,4 milljörðum króna. Meðallán almennra útlána nam tæpum 9,4 milljónum króna. Sjá mánaðarskýrslu.
10.4.2007 
Ríkiskaup hefur fyrir hönd Íbúðalánasjóðs óskað eftir tilboðum í þjónustu á vegum Íbúðalánasjóðs, en fyrri samningar sjóðsins við þjónustuaðila eru að renna út. Þjónustan sem óskað er eftir tilboðum í er:
A. Þjónusta fasteignasala við verðmöt og sölu uppboðsíbúða og annarra íbúða sem Íbúðalánsjóður óskar verðmats á.
B. Þjónustu við mætingar og hagsmunagæslu á nauðungarsölu hjá sýslumönnum.
Opnun tilboða verður þann 26. apríl 2007 kl. 14:00.
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is
28.3.2007 
Íbúðalánasjóður hefur auglýst til umsóknar styrki til námsmanna vegna rannsókna á sviði húsnæðismála. Upphæðin nemur alls 2,5 milljónum króna. Val á umsóknum grundvallast á því að rannsóknirnar tengist starfssemi Íbúðalánasjóðs. Sjá nánar.

27.3.2007 
Nú hefur Íbúðalánasjóður auglýst til umsóknar lán og styrki til tækninýjunga og annarra umbóta í byggingariðnaði vegna ársins 2007 og er umsóknarfrestur til 23. apríl næstkomandi.
Íbúðalánasjóður hefur heimild til að veita lán eða styrki til einstaklinga, fyrirtækja og stofnananna sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar á byggingarkostnaði og viðhalds íbúðarhúsnæðis, styttingar byggingartíma eða stuðlað með öðrum hætti að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði.
26.3.2007 
Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða áfram 4,75% á lán með uppgreiðsluálagi, en 5,00% á lán án uppgreiðsluálags. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 23. mars, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa er 4,30%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70%.
19.3.2007 
Fjölmargir viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs hafa þurft að sæta verulegum skerðingum á lánveitingum frá sjóðnum vegna reglugerðaákvæða sem kveða á um að lán Íbúðalánasjóðs skuli ekki vera hærra en brunabótamat íbúðar að viðbættu lóðarmati.
Ákvæðið um viðmið við brunabótamat var á sínum tíma ekki ætlað að takmarka almennar lánveitingar Íbúðalánasjóðs enda var verð íbúða sjaldnast yfir brunabótamati fyrr en eftir að húsnæðisverð fór að hækka verulega upp úr árinu 1998.
16.3.2007 
Vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna hækka frá á og með deginum í dag. Um er að ræða valkvæða lánaflokka, með eða án uppgreiðsluþóknun. Í fyrri flokknum hækka vextir úr 5,70% í 5,95% og úr 5,95% í 6,20% í þeim síðari.
12.3.2007 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmum 4,4 milljörðum króna í febrúar. Þar af voru ríflega 960 milljónir króna vegna leiguíbúðalána og almenn útlán námu tæpum 3,5 milljörðum króna, en meðallán almennra útlána nam tæpum 9,2 milljónum króna.
9.3.2007 
Í kjölfar útboðs íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs hafa vextir Íbúðalánasjóðs hækkað um 0.05% og eru nú 4,75% á lánum með sérstöku uppgreiðsluálagi og 5,0% á lánum án sérstaks uppgreiðsluálags.
28.2.2007 
Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um breytingu á reglugerð um lánshlutfall og fjárhæð ÍLS-veðbréfa, nr. 540/2006. Breytingin felur í sér að lánshlutfall almennra lána Íbúðalánasjóðs hækkar úr 80% í 90% og hámarksfjárhæð almennra lána hækkar úr 17 milljónum króna í 18 milljónir króna.
27.2.2007 
Frá og með 28. febrúar hækka vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna. Um er að ræða valkvæða lánaflokka, með eða án uppgreiðsluþóknun. Í fyrri flokknum hækka vextir úr 5,60% í 5,70% en úr 5,85% í 5,95% í þeim síðari.
22.2.2007 
Ársreikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2006 var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins í dag 22. febrúar 2007. Uppgjörið var gert í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um ársreikninga lánastofnana. Hann er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og undanfarin ár. Sjá ársreikning.
14.2.2007 
Íbúðalánasjóður hefur nú birt í heild sinni tvær viðhorfskannanir sem Capacent gerði fyrir sjóðinn í október og nóvember síðastliðnum. Annars vegar er um að ræða könnun meðal fasteignakaupenda og hins vegar meðal almennings. Í könnununum kemur meðal annars fram að viðhorf Íslendinga til Íbúðalánasjóðs og þjónustu hans eru afar jákvæð og mikill stuðningur er við starfsemi sjóðsins í núverandi mynd.
9.2.2007 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu samtals tæpum 4,3 milljörðum króna í janúar. Þar af voru tæplega 800 milljónir króna vegna leiguíbúðalána á meðan almenn útlán námu um 3,5 milljörðum króna.
25.1.2007 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verði óbreyttir. Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða því 4,95%. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25% lægri vöxtum eða 4,70%.
22.1.2007 
Frá og með 21. janúar hækka vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna. Um er að ræða valkvæða lánaflokka, með eða án uppgreiðsluþóknun.  Í fyrri flokknum hækka vextir úr 5,40% í 5,60% en úr 5,65% í 5,85% í þeim síðari.
17.1.2007 
Nýr og endurbættur vefur Íbúðalánasjóðs,  www.ils.is, hefur verið valinn í úrslit Íslensku vefverðlaunanna 2006 í tveimur flokkum, Besti stofnunar- eða fyrirtækisvefurinn og Besti þjónustuvefurinn.
10.1.2007 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs um 4,9 milljörðum króna í desember, þar af voru um 1,3 milljarðar króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán námu um 3,6 milljörðum króna. Sjóðurinn lánaði því samtals um 15,8 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi.
5.1.2007 
Íbúðalánasjóður veitir nú á vefsíðu sinni www.ils.is, grunnupplýsingar um íbúðalán sjóðsins á 7 erlendum tungumálum að viðbættri ensku. Tungumálin eru danska, pólska, rússneska, serbneska, spænska, taílenska og víetnamska. Þýðingarnar voru unnar í samstarfi við Alþjóðahús.
3.1.2007 
Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur ákvarðað að breytilegir vextir leiguíbúðalána verði 4,95% frá áramótum. Öll leiguíbúðalán í flokki almennra leiguíbúðalána með breytilegum vöxtum munu bera þessa vexti, hvort sem um er að ræða áður tekin lán eða lán sem tekin verða á næstunni.
29.12.2006 
 Almenningur á Íslandi vill að Íbúðalánasjóður haldi áfram starfsemi sinni á þeim nótum sem hann hefur verið rekin undanfarin ár. Í könnun Capacent sem gerð var í nóvember og desember kom í ljós að 82,9% aðspurðra taldi að sjóðurinn ætti að starfa áfram í óbreyttri mynd. Einungis 6,4% töldu að Íbúðalánasjóður ætti að hætta starfsemi og láta bönkum og sparisjóðum eftir almenn íbúðalán. 10,6% taldi að breyta ætti Íbúðalánasjóði í heildsölubanka.
23.12.2006 
Alþjóð virðist afar ánægð með Íbúðalánasjóð samkvæmt niðurstöðum nýlegrar könnunar Capacent á viðhorfi almennings til sjóðsins. Í könnuninni kemur fram að 79,9% aðspurðra er jákvæður í garð Íbúðalánasjóðs. Einungis 3,8% aðspurðra er neikvæður í garð sjóðsins.
22.12.2006 
Standard & Poor´s hafa staðfest fyrra lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í innlendri mynt. Lánshæfismatið er AA- til langs tíma og A-1+ til skamms tíma. Þá metur Standard & Poor´s að horfur hjá Íbúðalánasjóði séu áfram stöðugar í innlendri mynt.
20.12.2006 
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s hefur staðfest gott lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í nýjustu skýrslu sinni um stöðu og horfur fjármálastofnana á Íslandi.Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs hjá Moody´s er sem fyrr Aaa og horfur eru metnar stöðugar.
14.12.2006 
Áætluð útgáfa íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs árið 2007, til fjármögnunar nýrra útlána, er 47–55 milljarðar króna. Íbúðalánasjóður áætlar að ný útlán sjóðsins verði á bilinu 52–59 milljarðar kr. á árinu 2007. Þar af er gert ráð fyrir að leiguíbúðalán verði á bilinu 8–9 milljarðar króna sem er nokkur aukning frá árinu 2006.
8.12.2006 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu samtals 4,7 milljörðum króna í nóvember en þar af voru um 600 milljónir króna leiguíbúðalán. Almenn útlán sjóðsins í mánuðinum námu því um 4,1 milljörðum króna sem er um 3% aukning frá fyrra mánuði.
22.11.2006 
Stjórn Sparisjóðanna hefur ákveðið að hækka lánshlutfall sitt í 80% af kaupverði fasteigna. Hér er um að ræða svonefnd hattalán í lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna, www.ibudalan.is
15.11.2006 
Rannsóknarsetrið í húsnæðismálum við Háskólann á Bifröst stendur fyrir ráðstefnu um fasteignamarkað og byggðaþróun á Íslandi, á Hótel Nordica (sal G), föstudaginn 17. nóvember n.k., kl 13.15-15.15. Ráðstefnan ber heitið Borgin gegn landinu - Keppendur eða samherjar og verður sett af Magnúsi Stefánssyni félagsmálaráðherra. Samstarfsaðilar eru Félagsmálaráðuneytið og Íbúðalánasjóður. 
10.11.2006 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs 6,2 milljörðum króna í október, sem er 82% aukning frá fyrra mánuði. Þessi mikla aukning frá fyrra mánuði skýrist að hluta til vegna umtalsverðra aukningar í leiguíbúðalánum, en alls námu þau 2,2 milljörðum króna í mánuðinum. Almenn útlán sjóðsins námu um 4,0 milljörðum króna í október sem er tæplega 23% aukning frá fyrra mánuði.
Alls hefur sjóðurinn því lánað tæplega 40 milljarða króna á árinu 2006 en áætlanir hans gera ráð fyrir heildarútlánum á bilinu 43-49 milljarðar króna í árslok 2006.
1.11.2006 
Ríkisendurskoðun hefur lokið athugun sinni á fjárhagsstöðu Íbúðalánasjóðs skv. beiðni félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra frá 13. desember 2005. Í bréfi þessu óskuðu ráðherrarnir efitr að leitað yrði svara við eftirtöldum þremur spurningum: 1) Hvort líklegt sé að eiginfjárhlutfall Íbúðalánasjóðs stefni niður fyrir áksilin hlutföll í fyrirsjáanlegri framtíð?, 2) Ef svar við fyrstu spurningu er játandi, hvort um varanlegt eða tímabundið ástand sé að ræða? og 3) Hvort líkur séu á að reyna muni á ríkisábyrgð á skuldbindingum Íbúðalánasjóðs? Meðfylgjandi er skýrsla Ríkisendurskoðunar en niðurstöður hennar voru eftirfarandi:
31.10.2006 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verði óbreyttir. Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða því 4,95%. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25%lægri vöxtum eða 4,70%.
20.10.2006 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verði óbreyttir. Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða því 4,95%. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25% lægri vöxtum eða 4,70%.
12.10.2006 
Cristina Costa frá Evrópusamstökum um sérvarin skuldabréf (ECBC) í Brussel heldur fyrirlestur í boði Íbúðalánasjóðs á Hótel Nordica, sal G kl. 9-10, þriðjudaginn 31. október.
Costa er helsti ráðgjafi við EMF (European Mortgage Federation) þar sem hún starfar við rannsóknir á þróun sérvarinna skuldabréfa (covered bonds) og fjármagnsmarkaða á vettvangi Evrópusambandsins jafnt sem einstakra ríkja. Costa stóð fyrir stofnun ECBC, samtökum útgefanda sérvarinna skuldabréfa, greiningaraðila, fjárfestingabanka, lánshæfismatsfyrirtækja og annarra áhugasamra um sérvarin skuldabréf.
12.10.2006 
Vegna skipulalagsdags hjá starfsfólki föstudaginn 13.okt., verður Íbúðalánasjóði lokað á hádegi. Sjóðurinn opnar aftur á mánudaginn 16.okt. kl.8:00.
11.10.2006 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 3,4 milljörðum króna í september. Þetta er 7,5 prósenta útlánaaukning frá mánuðinum á undan en samtals hefur Íbúðalánsjóður lánað 33,7 milljarða krónur á árinu. Það er í takt við áætlanir sjóðsins.
Alls lánaði sjóðurinn um 11,4 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi sem er í takt við áætlanir hans, en þær gerðu ráð fyrir útlánum á bilinu 11-13 milljarða króna. Áætlanir Íbúðalánasjóðs gerðu ráð fyrir 31-35 milljarða heildarútlánum á tímabilinu.
26.9.2006 
Ríkisstjórnin felur félagsmálaráðherra að vinna að útfærslu breytinga sem gera Íbúðalánasjóði kleift að setja á fót fjármögnunarkerfi á heildsölustigi.
Stýrihópur, sem falið var að efna til víðtæks samráðs um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum, skilaði félagsmálaráðherra áliti sínu í gær og á fundi sínum í morgun fól ríkisstjórnin ráðherra að vinna að útfærslu að tillagna sem fram koma í álitinu.
18.9.2006 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verði óbreyttir.
Vextir íbúðalána sjóðsins verða því áfram 4,95%. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25% lægri vöxtum eða 4,70%.
8.9.2006 
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs 3,2 milljörðum króna í ágúst, en þar af teljast 3,1 milljarðar til almennra lána og 0,1 milljarðar króna til leiguíbúðalána. Útlán sjóðsinsdragast saman frá fyrra mánuði sem kann að skýrast að hluta til vegna þess að umsvif í ágústmánuði kunna að minnka vegna sumarleyfa en einnig virðast umsvif á fasteignamarkaði hafa minnkað almennt eins og við höfum áður komið inn á vegna breyttra markaðsaðstæðna.
25.8.2006 
Íbúðalánasjóður hefur veitt styrki til tækninýjunga eða umbóta í byggingariðnaði. Slík styrkveiting er árlegur viðburður hjá sjóðnum sbr. ákvæði laga um húsnæðismál. Heimilt er að veita styrki til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar á byggingarkostnaði og viðhaldi íbúðarhúsnæðis, styttingar byggingartíma eða stuðlað að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði.
14.8.2006 
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verði óbreyttir.
Útlánsvextir verða því  áfram 4,95%. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25% lægri vöxtum eða 4,70%.
11.8.2006 
Heildarlán Íbúðalánasjóðs námu 5,1 milljarði í júlí en þar af voru tæplega 4,9 milljarðar sem tilheyra almennum lánum og um 200 milljónir sem tilheyra leiguíbúðalánum. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu.

Mánaðarskýrsla júlí 2006.pdf
10.8.2006 
Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2006 var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins í dag 10. ágúst 2006. Uppgjörið var gert í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um ársreikninga lánastofnana. Hann er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og undanfarin ár.
27.7.2006 
Rúmlega 1.230 manns sem fá vaxtabætur eða hafa fengið fyrirframgreiddar vaxtabætur eru í vanskilum hjá Íbúðalánasjóði og verður vaxtabótunum skuldajafnað á móti vanskilum samtals að upphæð 75,7 milljónir kr. Vaxtabætur verða látnar ganga upp í vanskil fram til 15. júní. Kröfuskrá var send ríkisskattstjóra í byrjun júlí vegna tölvuvinnslu og þess vegna getur verið mismunur á stöðu og skuldajöfnun í lok júlí. Þeir sem hafa gert skil í þessum mánuði fá senda ávísun fyrir þeirri fjárhæð sem hefur verið dregin frá vaxtabótunum. Ávísanir fara í póst mánudaginn 31. júlí og ættu því að berast viðtakendum í vikunni.
20.7.2006 
Dregin voru út húsbréf í þremur órafvæddum flokkum í aukaútdrætti nýlega og koma þau til greiðslu 15. september í haust. Dregin voru út bréf í 4. flokki 92 (IBH147-1215), 4. flokki 94 (IBH19-0915), nafnverð 25.350.000 kr. og 2. flokki 95 (IBH20-0615), nafnverð 59.030.000 kr. Listi yfir bréfin sem dregin voru út er í Lögbirtingarblaðinu og hér vinstra megin á forsíðunni ef smellt er á tengilinn “Útdregin húsbréf”.
20.7.2006 
Loks er sumarið komið í Reykjavík og sól skín í heiði. Afgreiðsla Íbúðalánasjóðs í Reykjavík verður þess vegna lokuð frá kl. 11:30 – 13. Þjónustuverið er opið og hægt að hafa samband í síma eða á Netinu í allan dag.
17.7.2006 
Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum í AA- úr AA+. Jafnframt er sjóðurinn tekinn af athugunarlista. Samkvæmt hinu nýja lánshæfismati eru horfur í íslenskum krónum stöðugar. Lánshæfismat fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt er staðfest AA- og fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og erlendri mynt A-1+. Horfur fyrir erlenda mynt eru neikvæðar.
14.7.2006 
Nú eru vextir af almennum lánum Íbúðalánasjóðs til íbúðakaupa eða nýbygginga 4,70% (án heimildar til uppgreiðslu nema gegn sérstakri þóknun) og bjóðast ekki lægri vextir en það hjá stærstu viðskiptabönkunum. Sambærilegir vextir eru 4,85% hjá KB banka, 4,95% hjá Landsbankanum, 4,95% hjá SPRON og 5,00% hjá Glitni.
12.7.2006 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í júní námu 4,3 milljörðum króna, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu. Heildarútlán frá áramótum eru rúmlega 22 milljarðar króna, sem er í takt við áætlanir sjóðsins.
6.7.2006 
Skuldir heimilanna við banka og sparisjóði hafa þrefaldast síðustu tvö ár á sama tíma og skuldir heimilanna við Íbúðalánasjóð hafa dregist saman um tæpan fjórðung.
90% lán Íbúðalánasjóðs eru langt innan við 10% af heildarútlánum sjóðsins og af þessum lánum eru um 90% tengd landsbyggðinni.
Af þessu má sjá að útlán Íbúðalánasjóðs sl. 2 ár hafa í fyrsta lagi ekki leitt til þenslu í útlánum til almennings og í öðru lagi er ljóst að 90% lán Íbúðalánasjóðs eru ekki mikil á þessu tímabili og fara nær öll út á land.
30.6.2006 
Félagsmálaráðherra hefur fallist á tillögu stjórnar Íbúðalánasjóðs um að hækka vaxtaálag á ÍLS-veðbréfum um 0,10%. Vextir á lánum án heimildar til uppgreiðslu eða aukaafborgana, nema gegn sérstakri þóknun, verða því 4,70% í stað 4,60% áður, en vextir á lánum með slíkri heimild verða 4,95% í stað 4,85% áður. Vaxtaálagið var áður 0,60% en verður 0,70% með breytingunni. Álagið skiptist þannig að 0,25% eru vegna rekstrar, 0,20% vegna varasjóðs og 0,25% vegna uppgreiðsluáhættu.
30.6.2006 
Hámarkslán Íbúðalánasjóðs lækkar um eina milljón króna á miðnætti, verður 17 milljónir króna í stað 18 milljóna. Þá lækkar lánshlutfall úr 90% í 80% frá sama tíma. Hámarkslán og lánshlutfall verður óbreytt til miðnættis og verða gildar umsóknir sem berast fyrir þann tíma afgreiddar samkvæmt því.
27.6.2006 
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að lækka lánshlutfall Íbúðalánasjóðs tímabundið úr 90% í 80% og hámarkslán úr 18 milljónum króna í 17 milljónir. Breytingarnar taka gildi 1. júlí. Er þetta gert til þess að stuðla að því með ótvíræðum hætti að markmið um hjöðnun verðbólgu gangi eftir sem fyrst. Þá verður lánafyrirgreiðsla Íbúðalánasjóðs til íbúðakaupenda og húsbyggjenda takmörkuð á þann veg að sami aðili geti ekki samtímis átt fleiri en eina íbúð sem á hvíla lán frá sjóðnum nema við sérstakar, tímabundnar aðstæður.
22.6.2006 
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA hefur hafið formlega athugun á ríkisaðstoð sem veitt er Íbúðalánasjóði. Stofnunin er að bregðast við dómi EFTA-dómstólsins frá 7. apríl í vor þar sem dæmd var ógild niðurstaða ESA frá því 11. ágúst 2004, um að ríkisaðstoðin væri þjónusta í almannaþágu og því í samræmi við ríkisstyrkjareglur EES-samningsins.
21.6.2006 
Áhrif fólksfjölda og fæðingartíðni á íslenskan fasteignamarkað og búsetumynstur erlendra ríkisborgara á höfuðborgarsvæðinu eru meðal þeirra háskólaverkefna sem Íbúðalánasjóður styrkir. Fimmtán nemendur í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Viðskiptaháskólanum á Bifröst sóttu um styrki að þessu sinni, og voru sex valin til að hljóta styrk. Umsóknirnar spönnuðu margar ólíkar fræðigreinar; hagfræði, viðskiptafræði, lögfræði, landafræði, verkfræði og mannfræði.
16.6.2006 
Magnús Stefánsson, nýr félagsmálaráðherra opnaði nýja heimasíðu Íbúðalánasjóðs síðdegis. Hann kynnti sér starfsemi sjóðsins og heilsaði upp á starfsfólk í Borgartúni 21 í fylgd Guðmundar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra. Íbúðalánasjóður er fyrsta stofnunin, sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið, sem nýr ráðherra heimsækir.
14.6.2006 
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 4,7 milljörðum króna í maí. Þar af voru rúmlega 3,9 milljarðar almenn lán og tæplega 800 milljónir lán til leiguíbúða. Þetta er 57% aukning frá því í apríl. Þróun útlána sýnir að hlutdeild Íbúðalánasjóðs í útlánum til íbúðakaupa er að aukast. Bankar og sparisjóðir virðast hafa dregið úr útlánum til íbúðakaupa að undanförnu og þrengt skilyrði umtalsvert.
9.6.2006 
Vextir á lánum Íbúðalánasjóðs verða áfram 4,60% með uppgreiðsluþóknun og 4,85% án uppgreiðsluþóknunar. Í útboði íbúðabréfa 8. júní bárust tilboð að nafnvirði 25 milljarðar króna. Ákveðið var að taka tilboðum í íbúðabréf að nafnvirði 6,4 milljarðar króna.
8.6.2006 
Vanskil vegna útlána Íbúðalánasjóðs hafa aldrei verið minni en nú í upphafi maímánaðar. Skiptir þá engu hvort um er að ræða fjárhæð sem hlutfall af heildarútlánum sjóðsins, fjölda lántakenda sem hlutfall af heildarfjölda lántakenda eða fjölda útlána sem hlutfall af heildarfjölda útlána...
7.6.2006 
Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvað að veita útskriftarnemum í meistaranámi byggingariðngreina styrki fyrir góðan námsárangur, í tilefni af 50 ára afmæli opinberra húsnæðislána. Fjórir útskriftarnemar hlutu viðurkenningu að þessu sinni....
31.3.2006 
Vextir af lánum Íbúðalánasjóðs frá 1. apríl 2006 eru 4,60% á lánum með uppgreiðsluþóknun og 4,85% á lánum án...
29.3.2006 
Íbúðalánasjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til tækninýjunga í byggingariðnaði. Rafræn umsóknareyðublöð vegna styrkja ÍLS til...
8.3.2006 
Vextir á lánum Íbúðalánasjóðs frá og með 8. mars eru...

27.2.2006 
Ársreikningur Íbúðalánasjóðs 2005 sýnir að staða Íbúðalánasjóðs er sterk þrátt fyrir miklar breytingar á íbúðalánamarkaði frá því Íbúðalánasjóður...
24.2.2006 
Íbúðalánasjóður mun hefja viðskipti á skuldabréfamarkaði Kauphallarinnar þann 7. mars. Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallar Íslands hefur boðið...
20.2.2006 
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að efna til víðtæks samráðs um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánum. Í þeirri...
11.1.2006 
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að efna til víðtæks samráðs um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánum. Í þeirri...
6.1.2006 
Greiðendum íbúðalána gefst nú kostur á að lækka greiðslugjaldið sem leggst á hvern gjalddaga með því að afþakka útsendingu greiðsluseðla á pappír...