Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rétt rúmum 1,9 milljörðum króna í júní en þar af voru um 1,6 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 tæpum 12 milljörðum króna samanborið við rúmlega 17,4 milljarða á sama tímabili árið 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 10,0 milljónir króna í júní en um 8,6 milljónir í maí síðastliðnum.
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rétt rúmum 1,9 milljörðum króna í júní en þar af voru um 1,6 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 tæpum 12 milljörðum króna samanborið við rúmlega 17,4 milljarða á sama tímabili árið 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 10,0 milljónir króna í júní en um 8,6 milljónir í maí síðastliðnum.
Íbúðalánasjóður hélt fjórða útboð íbúðabréfa á árinu 7. júní 2010. Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 13,137 milljarða króna og ákveðið var taka tilboðum að nafnverði 1,3 milljörðum króna í HFF24 á meðalávöxtunarkröfunni 3,61% án þóknunar, 2,8 milljarða króna í HFF34 á meðalávöxtunarkröfunni 3,57% án þóknunar og 2,65 milljarða króna á meðalávöxtunarkröfunni 3,55% án þóknunar. Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar var 3,57% og 3,59% með þóknun. Stjórn Íbúðalánasjóðs lagði til við félags-og tryggingamálaráðherra að hækka vaxtaálag sjóðsins um 0,15% og féllst ráðherra á þá tillögu. Íbúðalánasjóður ákvað í kjölfar útboðs að útlánavextir héldust óbreyttir og eru því þeir eftir sem áður 4,50% með uppgreiðsluákvæði og 5,00% án uppgreiðsluákvæðis.
Matsfyrirtækið Standard & Poors greindi frá því 14. júní síðastliðinn að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir Íbúðalánasjóðs vegna lækkandi eiginfjárstöðu. Lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum lækkar í BB+ úr BBB. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í BB+ úr BBB-. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og erlendri mynt var lækkuð í B úr A-3. Þá voru lánshæfiseinkunnirnar teknar af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum en horfur eru neikvæðar.
Þann 16. júní var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við útgáfu íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá 1. júlí 2010 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig "aðalmiðlara með íbúðabréf". Þær eru: Arion banki hf, Íslandsbanki hf, MP banki hf, NBI hf. og Saga Capital fjárfestingarbanki. Samningarnir gilda frá 1. júlí 2010 til 30. júní 2011.
Heildarvelta íbúðabréfa nam um 66,5 milljörðum króna í júní samanborið við um 46,6 milljarða í maí. Ávöxtunarkrafa íbúðabréfa lækkaði um 7-23 punkta eftir flokkum.
Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu rúmum 10,2 milljörðum króna í júní en þær voru að stærstum hluta vegna afborgana íbúðabréfa í flokki HFF44 en einnig vegna afborgana húsbréfa og húsnæðisbréfa. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóðs í júní námu tæpum 850 milljónum króna.