Upplýsingar til viðskiptavina sem eru með lán í frystingu
Viðskiptavinir sem eru með lán í frystingu koma til með að sjá árlegan uppreikning á frystum lánum í einkabanka/heimabanka.

Desembergjalddagi, skráður 1. eða 15. desember, eins og gjalddagar lánsins eru, er að öllu jöfnu mun hærri en venjulegir gjalddagar – þennan gjalddaga á ekki að greiða heldur er þetta uppreikningur á láninu (vextir og verðbætur) vegna frystingarsamnings. Þessi upphæð mun leggjast við höfuðstól lánsins eins og fram kemur í frystingarsamningi.