Á þeim ÍLS bréfum sem á eru ákvæði um uppgreiðsluþóknun getur hugsanlega komið til uppgreiðsluþóknunar vegna aukaafborganna og/eða uppgreiðslu lánsins.
Uppgreiðsluþóknunin reiknast af þeirri fjárhæð sem greidd er umfram reglulega gjalddaga veðbréfsins.
Þóknun vegna uppgreiðslu skuldar og aukaafborgana er "reiknuð af mismun á vaxtastigi ÍLS-veðbréfsins sem greitt er og markaðsvaxta sambærilegra nýrra lána hjá Íbúðalánasjóði ef þeir eru lægri, miðað við uppreiknaðar eftirstöðvar lánsins, núvirt frá uppgreiðsludegi til lokagjalddaga eða miðað við innborgaða fjárhæð ef um aukaafborgun er að ræða," eins og segir í 6. tölulið skilmála ÍLS-veðbréfsins.
Þetta þýðir að uppgreiðsluþóknunin getur verið mishá. Það veltur bæði á því hverjir vextirnir verða á þeim tíma sem lánið er greitt upp og hversu langur tími er þá eftir af láninu.
- Ef vextir hækka eftir lántöku eða eru óbreyttir þegar lánið er greitt upp, þarf ekki að greiða uppgreiðsluþóknun.
- Ef vextir lækka eftir lántöku þarf að greiða uppgreiðsluþóknun sem reiknuð er á uppgreiðsludegi.
- Uppgreiðsluþóknunin lækkar í samræmi við lengd lánstíma. Því styttra sem eftir er af láninu, þeim mun lægri verður þóknunin.
Í eftirfarandi töflu má sjá dæmi um hvernig uppgreiðsluþóknunin breytist þegar vextir og/eða lánstími breytist. Viðmiðið er við lán til 40 ára lán á 4,50% vöxtum:
| Nýir vextir |
Áætluð uppgreiðsluþóknun |
| |
35 ár eftir |
25 ár eftir |
15 ár eftir |
| 4,50% |
0,00% |
0,00% |
0,00% |
| 4,40% |
1,32% |
1,04% |
0,69% |
| 4,30% |
2,67% |
2,09% |
1,39% |
| 4,20% |
4,05% |
3,16% |
2,09% |
| 4,10% |
5,46% |
4,25% |
2,81% |
| 4,00% |
6,89% |
5,35% |
3,53% |
| 3,90% |
8,36% |
6,48% |
4,26% |
| 3,80% |
9,86% |
7,62% |
4,99% |
| 3,70% |
12,95% |
9,95% |
6,48% |
|
|
|
|