|
Hægt er að skuldbreyta vanskilum hjá lántakendum Íbúðalánasjóðs. Skuldbreyting felst í því að breyta þeirri fjárhæð sem er í vanskilum í nýtt lán. Lánstími skuldbreytingarlána er 5 - 30 ár. Vextir á skuldbreytingarlánum eru vegnir meðaltalsvextir af þeim lánum sem er skuldbreytt. Skuldbreytingarlán er tryggt með sama veðrétti og það lán sem er í vanskilum eða á síðasta veðrétti í óslitinni veðröð lána Íbúðalánasjóðs. Afborganir, vextir og verðbætur af skuldbreytingarlánum eru greiddar mánaðarlega. Fyrsti gjalddagi er í byrjun þarnæsta mánaðar eftir útgáfudag skuldabréfs.
Umsóknir um aðstoð vegna greiðsluvanda eiga ekki að berast Íbúðalánasjóði beint heldur banka eða sparisjóði sem fer yfir umsóknina og gerir tillögu til Íbúðalánasjóðs um úrlausn vandans. Æskilegast er að beina umsókn til þess banka eða sparisjóðs þar sem viðkomandi á helstu viðskipti sín.
Skilyrði fyrir skuldbreytingu:
- Að greiðsluerfiðleikar stafi af óvæntum tímabundnum erfiðleikum vegna veikinda, slysa, minni atvinnu, atvinnuleysis eða af öðrum ófyrirséðum atvikum.
- Að aðrir lánardrottnar umsækjanda samþykki einnig að veita aðstoð vegna greiðsluerfiðleika ef þörf er talin á því.
- Að greiðslubyrði umsækjanda samkvæmt greiðslumati sé umfram greiðslugetu.
- Að greiðslubyrði umsækjanda eftir skuldbreytingu og/eða frestun á greiðslum rúmist innan greiðslugetu.
Ef ástæða greiðsluerfiðleika er tímabundin tekjulækkun skal í mati á greiðslugetu miða við tekjur umsækjanda áður en tekjur lækkuðu.
Fylgigögn umsóknar um skuldbreytingu
- Afrit af tveimur síðustu skattskýrslum, staðfestum af viðkomandi skattayfirvöldum eða löggiltum endurskoðanda.
- Afrit af launaseðlum síðustu þriggja mánaða.
- Afrit gagna er veita upplýsingar um lífeyri, bætur, meðlög, barnabætur, húsaleigu og aðrar tekjur.
- Afrit af síðasta greiðsluseðli allra lána umsækjanda.
- Afrit af samningum við kröfuhafa.
- Veðbókarvottorð.
Athugið að ekki er unnt að gera endanlega tillögu um skuldbreytingu nema umbeðnar upplýsingar liggi fyrir. |