Frestun afborgana
Íbúðalánasjóði er heimilt að veita einstaklingum frestun á afborgunum lána í allt að 3 ár.

Umsókn um greiðslufrestun á lánum þarf að fara í gegnum banka og sparisjóði eða Ráðgjafarstofu heimilanna. Æskilegt er að umsóknin berist þeim banka eða sparisjóði þar sem viðkomandi á helstu viðskipti sín. Þessir aðilar koma umsókninni síðan áfram til Íbúðalánsjóðs. Ekki er hægt að sækja beint um frystingu hjá Íbúðalánasjóði.

Ef umsækjandi á í verulegum greiðsluvanda, kominn í þrot með fjármál sín eða staða hans að öðru leyti umfangsmikil að mati fjármálastofnunar, vísar hún umsókn til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Starfsfólk ráðgjafarstofunnar skoðar málið og gerir svo tillögu til Íbúðalánasjóðs og hlutaðeigandi fjármálastofnana um úrlausnir.

Skilyrði fyrir frestun afborgana:
  1. Að greiðsluerfiðleikar stafi af óvæntum tímabundnum erfiðleikum vegna veikinda, slysa, minni atvinnu, atvinnuleysis eða öðrum ófyrirséðum atvikum.
  2. Að aðrir lánardrottnar umsækjanda samþykki einnig að veita aðstoð vegna greiðsluerfiðleika.
  3. Að greiðslubyrði umsækjanda samkvæmt greiðslumati sé umfram greiðslugetu.
  4. Að greiðslubyrði umsækjanda eftir skuldbreytingu og/eða frestun á greiðslum rúmist innan greiðslugetu.
  5. Að lán sé í skilum (sé lánið komið í vanskil, þarf að semja um greiðslur á þeim hluta við Íbúðalánsjóð).

Ef ástæða greiðsluerfiðleika er tímabundin tekjulækkun skal í mati á greiðslugetu miða við tekjur umsækjanda áður en tekjur lækkuðu.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn.

  • Afrit af tveimur síðustu skattskýrslum, staðfestum af viðkomandi skattayfirvöldum eða löggiltum endurskoðanda.
  • Afrit af launaseðlum síðustu þriggja mánaða.
  • Afrit gagna er veita upplýsingar um lífeyri, bætur, meðlög, barnabætur, húsaleigu og aðrar tekjur.
  • Afrit af síðasta greiðsluseðli allra lána umsækjanda.
  • Afrit af samningum við kröfuhafa.
  • Veðbókarvottorð.

Athugið að ekki er unnt að gera endanlegar tillögur nema umbeðnar upplýsingar liggi fyrir. Frystingu er aflétt ef eigendaskipti verða á íbúð sem á hvílir lán í frystingu.