Almennt:

1. Skuldari sækir um uppgjör vanskila. Umsóknin sendist rafrænt til Íbúðalánasjóðs sem tekur afstöðu til hennar.

2. Innheimtuaðgerðir stöðvast sjálfkrafa við samning .

Tímalengd og samningsgreiðslur.
3. Samningur er í mesta lagi gerður til 18 mánaða. Miðað er við að skuldari greiði upp öll vanskil og áfallandi greiðslur á samningstímanum. Greiða þarf mánaðarlega af vanskilasamningi.

Greiðslur samkvæmt samningi.
4. Athygli skuldara er vakin á eftirfarandi atriðum:

a. Mánaðarlegar greiðslur þarf að greiða fyrir 20. hvers mánaðar annars fellur samningur úr gildi. Dráttarvextir reiknast áfram þar til til vanskil eru að fullu greidd.
b. Afborganir í samningnum byggjast á áætlun fram í tímann þannig að einhver fjárhæð getur staðið eftir í lok samningstímans.
c. Skuldari greiðir samningsfjárhæð í banka eða sparisjóði og notar til þess greiðsluseðla sem sendir eru út eftir sem áður. Sérstakir greiðsluseðlar eru ekki sendir út vegna samningsgreiðslu.

Vanefndir á samningi.
5. Ef ekki er staðið við samning er hann felldur úr gildi og innheimtuaðgerðir hefjast aftur. Eftir 20. hvers mánaðar eru vanefndir á samningum kannaðar.

Breytingar á samningi sem er í skilum.
6. Ef samningur er í skilum er heimilt að breyta honum með nýjum samningi ef skuldari óskar vegna breyttra aðstæðna. Fyrst þarf þó að fella niður fyrri samning, Samningstími er þó aldrei lengri en 18 mánuðir.

Breytingar á samningi sem er í vanskilum.
7. Ef samningur er í vanskilum eða samningur hefur verið felldur niður vegna vanefnda verður nýr samningur ekki samþykktur án þess að fyrri samningur sé gerður upp.

Samningur fyrir greiðsluáskorun

Samið er um öll vanskil á samningsdegi og áfallandi greiðslur á samningstíma. Innheimtuaðgerðir stöðvast meðan staðið er við samninginn.

Samningur/greiðslur eftir greiðsluáskorun
Ekki er hægt að senda inn samning ef komin er greiðsluáskorun. hafið samband við íbúðalánasjóð vegna greiðslu.
Greiðsla:
Greiða þarf gjalddaga sem eru að baki kröfu í greiðsluáskorun (og þar með eldri gjalddaga) og þá stöðvast frekari innheimtuaðgerðir.
Athygli skuldara er vakin á því að greiðsluáskorun er send aftur í næsta mánuði ef nýrri gjalddagar fara í vanskil og eru ekki greiddir.

Samningur:
Samningur tekur til allra vanskila á samningsdegi auk áfallandi gjalddaga á samningstíma. Þá stöðvast frekari innheimtuaðgerðir meðan staðið er við samninginn. Hafi greiðandi fengið á sig innheimtukostnað áður en samið var fellur sá kostnaður ekki niður við samningsgerð.

Samningar eftir nauðungarsölubeiðni

Ekki unnt að gera samninga á meðan nauðungarsölubeiðni er virk. Snúið ykkur til Íbúðalánasjóðs til að fá upplýsingar um hversu mikið þarf að greiða til að nauðungarsölubeiðni verði afturkölluð.


Afturköllun:
Greiða þarf  a.m.k. þriðjung vanskila á greiðsludegi til að Íbúðalánasjóður afturkalli nauðungarsölubeiðni, á hvaða stigi sem uppboðsmál er.

Frestun:
Fyrstu fyrirtöku er ekki frestað. Byrjun uppboðs er frestað í hvert sinn sem skuldari óskar þess greiði hann tilskilið hlutfall vanskila og ekki eru liðnir 12 mánuðir frá fyrstu fyrirtöku. Greiðsla við hverja frestun er u.þ.b. sem svarar heildarvanskilum deilt með fjölda mánaða sem eftir standa af freststíma uppboðsmálsins. Samningur er ekki gerður heldur er byrjun uppboðs frestað í hvert sinn að beiðni skuldara samkvæmt ofanskráðu. Kostnaður verður ekki felldur niður ef greitt er eftir að kostnaður hefur lagst á lánin.